Inflúensan réðst inn á heimilið mitt í gær með nokkrum látum og ég ákvað því að fríska upp á þekkingu mína á bólusetningum og meðferð við þessari leiðinda veirusýkingu. Með hjálp dr. Google fann ég strax þessa fínu upplýsingasíðu hjá Landlækni en með sömu leit fann ég einnig upplýsingar á íslensku um hvernig hægt er að koma í veg fyrir/lækna/draga úr einkennum inflúensu með hómópatíu.
Á vefsíðunni Htveir er talað um að hómópatía sé mild og áhrifamikil náttúrumeðferð gegn hinum og þessum kvillu. Á sérstakri undirsíðu um inflúensu er bent á fjölmargar remedíur sem geta hjálpað gegn inflúensu. Á þessari merku síðu eru eftirfarandi skilaboð til þeirra sem eru með bráðatilfelli inflúensu: „Því er áríðandi fyrir þá að leita sér aðstoðar hjá hómópata eða lækni.“
Nú má fólk auðvitað trúa hvers kyns þvælu en það að hvetja fólk með mikil sjúkleg einkenni að leita til hómópata er alvarlegt mál. Hómópatía er fullkomlega ósönnuð aðferð og má með sanni kalla gervivísindi. Það sem meira er þá hefur hómópatía verið rannsökuð nokkuð og niðurstöður benda til þess að meðferð hómópata hafi enga virkni umfram lyfleysuáhrif. Þrátt fyrir þetta eru hómópatískar remedíur seldar í sumum apótekum, fjölmiðlar fjalla um þessi efni gagnrýnislaust og hómópatarnir sjálfir duglegir við að kynna og auglýsa töfralækninguna út um allt.
Nú kann að vera að ég sé hundleiðinlegur og ferkantaður en ég er þeirrar skoðunar að það sé siðferðilega rangt að auglýsa og selja gervilyf með þessum hætti. Peningar eru hafðir af veiku fólki auk þess sem það er auðvitað stórhættulegt að letja fólk með beinum eða óbeinum hætti að leita til læknis og nýta sér gagnreyndar meðferðir.
Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
Ekkert sem hefur einhverja virkni er "fullkomlega öruggt". Á síðunni sem ég vísa til segir m.a.: "Remedíur sem hafa verið notaðar í gegnum árin, á árangursríkan hátt, til að meðhöndla flensu á öllum stigum eru taldar upp hér fyrir neðan. Þær eru fullkomlega öruggar, þannig að allir, ungir jafnt sem aldnir geta tekið þær án áhættu."
ok,ok,ok hómópatið virkar ekki,ætliði að smelta þetta á ennið á okkur?Hvernig væri nú að snúa sér að vestrænum lyflækningum og skoða þær með gagnrýnum hug?Það deyja tugþúsundi ár hvert vegna þeirra í heiminum.Homopatar líta út eins og litla stúlkan með eldspýturnar í samanburði



