Hoppa í efni

Jon Stewart næsti forseti BNA?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 20.08.2006

Síðustu daga hef ég mikið verið að horfa á The Daily Show með Jon Stewart. Fyrir þá sem ekki vita eru þetta pólitískir grínþættir þar sem fjallað er um alvarleg mál á afar skemmtilegan hátt. Stjórnandi þáttarins, Jon Stewart, er bæði fyndinn og eitursnjall. Fjölmargir frjálslyndir Bandaríkjamenn eru komnir á þá skoðun að Stewart ætti að bjóða sig fram í næstu forsetakosningum. Ég er ekki frá því að það sé góð hugmynd. Á heimasíðunni TayTV (ThrowAwayYourTV.com) eru taldar upp 10 góðar ástæður fyrir framboði Stewarts. Enjoy!

Tenglar:
Top Ten Reasons Jon Stewart could be President

The Daily Show

PetitionOnline.com

JonStewartForPresident.com

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Marý 21. ágúst 2006

    TDS með Jon Stewart er algjör snilld!! Frábær þáttur. Ég er einmitt nýbúin að senda póst á RÚV og leggja til að þeir fari að sýna þessa þætti... stóra spurningin er hvort þeir hafi kjarkinn í það ;o)

    Svo er líka hægt að kaupa Stewart/Colbert '08 boli á netinu (sjá t.d. http://www.misswit.net/stewart.html og http://www.cafepress.com/stewartcolbert)

  2. Úlfar Örn Kristjánsson 10. desember 2006

    Loksins einhver sem að kann að meta (eða veit hvað) The Daily Show er!
    Hef verið mikill aðdáandi TDS síðustu ár og er einmitt að naga í handabökin á mér vegna öllum þeim snilldarþáttum sem að ég missi af daglega.
    Þetta er minn uppáhaldsþáttur, og ég ætla að senda e-mail á Rúv bara líka 😀
    Þess má einnig geta að það er hægt að kaupa mjög skemmtilegt DVD box set á http://www.amazon.com sem að heitir "INdecision 2004"

    "IT'S A SERIES OF TUBES!"

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Fjölmiðlar og opinber umræða

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.