Hoppa í efni

Hommahatursríkið Rússland hýsir uppljóstrara

Sigurður Hólm Gunnarsson | 01.08.2013

Uppljóstrarinn Edward Snowden hefur fengið tímabundið hæli í Rússlandi. Varla vegna þess að Pútín og rússneskum stjórnvöldum er annt um mannréttindi heldur af því þeim finnst gott að stríða Bandaríkjunum. Nú er bara að vona að drengurinn komi ekki út úr skápnum því kerfislægt hatur á samkynhneigðum er mikið í Rússlandi. Að sama skapi má varla búast við því að Snowden tjái sig mikið um mannréttindabrot í nýja heimalandi sínu.

Það er svo sem ágætt að Snowden fái hæli í Pútínlandi þar sem önnur ríki þorðu ekki bjóða honum aðstoð. Íslensk stjórnvöld þorðu ekki einu sinni að taka mál hans til umfjöllunar í þingnefnd.

Um leið og ég fagna því að Snowden hafi fengið skjól þykir mér skammarlegt að Ísland skuli vera trompað í mannréttindamáli af ríki sem virðist vera illa við tjáningarfrelsið. Af ríki sem bannar fræðslu um samkynhneigð, gleðigöngur og gagnrýni á Réttrúnaðarkirkjuna.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.