Hoppa í efni

Hjálparstofnanir á móti matarkortum?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 14.12.2010

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sagði í fréttum RÚV í kvöld að hjálparstofnanir hefðu ekki sýnt áhuga á að taka þátt í útgáfu svokallaðra matarkorta. En með innleiðingu slíkra korta væri hugsanlega hægt að útrýma niðurlægjandi biðröðum fyrir utan hjálparstofnanir. Ég átta mig því ekki á því af hverju hjálparstofnanir sýna hugmyndinni ekki áhuga.

Ég vil gjarnan fá útskýringar á þeirri afstöðu.

Eru hjálparsamtök komin í einhverja samkeppni við stjórnvöld um þjónustu við fólk í fjárhagsvanda?

Ef hægt er að koma í veg fyrir biðraðir eftir mat með matarkortum eiga allir að taka höndum saman og vinna að verkefninu.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Arnþór Jónsson 14. desember 2010

    Ef biðraðir hverfa þá hverfur þessi fjölskylduhjálp. Hún lifir á biðröðinni. Skil samt ekki af hverju ráðherra þarf þeirra leyfi fyrir kortum??

  2. Halldór C. 15. desember 2010

    er starfsfólk mæðrastyrksnefndar/fjölskylduhjálpar/hjálparst. kirkjunnar á launum?

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Stjórnmál og lýðræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.