Hoppa í efni

Hinsegin dagar 2003

Sigurður Hólm Gunnarsson | 09.08.2003

Það var virkilega gaman að sjá hve margir mættu til að taka þátt í Hinsegin dögum í dag þrátt fyrir hellidembu. Það var örugglega sett met í regnhlífanotkun í dag. Eins og venja er var skrúðgangan litskrúðug og fjörug og mikið um dýrðir.

Þegar að Lækjargötu var komið voru sýnd skemmtiatriði og hrífandi ávörp flutt. Í einni ræðunni voru skoðanasystkini páfans og Bush Bandaríkjaforseta hér á Íslandi hvött til að koma út úr skápnum með fordóma sína. Öðruvísi er ekki hægt að berjast gegn fordómunum. Ég óska aðstandendum hátíðarinnar til hamingju.

Sjá myndir af Hinsegin dögum.

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Þröstur Freyr Gylfason 11. ágúst 2003

    Flottar myndir! Veistu e.t.v. um fleiri sem tóku myndir á GayPride 2003 í Reykjavík? Kveðja, Þröstur

  2. Sigurður Hólm Gunnarsson 11. ágúst 2003

    Takk fyrir það Þröstur. Þú stóðst þig líka eins og hetja með Laugaráskvartettinum! Vissi ekki að þú værir svona fínn söngvari! Annars var fullt af fólki að taka myndir þarna. Þekki því miður engan persónulega.

  3. Alfreð Hauksson 20. ágúst 2003

    Það má finna fleiri myndir undir "Fréttir" á vefsíðu Samtakanna '78:
    http://www.samtokin78.is

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.