Hoppa í efni

Herinn að fara burt

Sigurður Hólm Gunnarsson | 16.03.2006

Ég get ekki sagt að ég hafi miklar áhyggjur af því að blessaður herinn sé að fara. Ég hef meiri áhyggjur af því að nú detti íslenskum stjórnarherrum í hug að stofna íslenskan her, með þeim kostnaði sem af slíkri vitleysu fylgir. Skoðanir mínar á veru hers á Íslandi er hægt að lesa í greininni “Hver er ógnin?”:

“Að Íslendingum stafar engin bein ógn, ef við utanskiljum þá ógn sem okkur stafar af heimskulegum hugmyndum. Í raun er aðeins hægt að hugsa sér eina gilda ástæðu fyrir því að óvinveittum aðilum dytti í hug að ráðast á þetta litla sker sem við köllum Ísland. Ástæðan er einmitt sú staðreynd að her, afar óvinsællar þjóðar víðs vegar um heiminn, er staðsettur hér á landi …”


Lesa “Hver er ógnin?”

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Ágúst 19. mars 2006

    Það eina sem mér dettur í huga með að Íslendingar tapi eitthvað á því að herinn fari í burt er tvímælalaust þyrlan sem þeir eru með í fórum sér.
    Þessi þyrla er með mjög góðan gæða stimpil sem hljómar svona:
    Gerð af Bandaríska hernum.
    Og efast ég um það að við getum keypt þyrlu með svona gæðastimpli.
    Og ef það vildi til að við myndum festa kaup á svona þyrlu og hún myndi glatast við einverjum ólíklegum aðstæðum þá værum við búin að tapa þvílíkan pening á því.
    En herinn hefði bara sent nýja þyrlu að okkar kostnaðarlausu.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.