Hoppa í efni

Heimspeki í heitum potti

Sigurður Hólm Gunnarsson | 16.05.2003

Ég ákvað að skella mér í sund í líka þessu frábæra veðri í morgun. Það var hreint yndislegt að liggja í heita pottinum taka við ylnum frá lífsgjafanum okkar, sólinni. Ég var ekki einn í pottinum, þar voru líka tíu eldri konur á aldrinum 60-70+ sem ræddu saman um lífið og tilveruna.

,,María mey var engin mey!" sagði ein þeirra og spurði vinkonur sínar: ,,Trúir því einhver?" Nei, engin þeirra sagðist trúa því. Ein sagði þetta augljóslega vera goðsögn á meðan önnur sagði að þetta hlyti að vera einhvers konar myndmál. Allar voru þær þó sammála því að ,,auðvitað" hafi María ekki verið mey.

Það kom mér skemmtilega á óvart að heyra konur á þessum aldri tala svo gagnrýnið um trúarbrögð. Ég hef alltaf haft þá fordóma að flest ,,gamla" fólkið sé afar trúað. Svo virtist ekki vera með þennan hóp. Þær fjölluðu áfram um trúarbrögð og hlógu að vitleysunni.

,,Ég held samt að það sé líf eftir dauðann," sagði ein þeirra. ,,...og ef svo er þá fer það bara eftir því hvernig þú hefur hagað þér hér á jörðinni hvernig líf þitt verður þar." Flestar tóku undir þessa speki. Enda mun fallegri heimsýn en sú kristna þar sem allir þeir sem trúa ekki blindni brenna í Helvíti.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.