Hoppa í efni

Hálka á velferðarbrúnni?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 02.12.2010

Það er stórkostleg hálka á velferðarbrúnni ef Sjúkratryggingar Íslands ætla að hætta að bjóða upp á nauðsynlega heimahjúkrun fyrir langveik og fötluð börn eins og fram kemur í fréttum.  Ég trúi varla að þetta sé satt.  Veit Jóhanna af þessu? Það hlýtur að eiga að veita þessa þjónustu áfram með einhverjum hætti.

Forstjóri Sjúkratrygginga segir að heilsugæslan og Landspítalinn eigi að veita þessa þjónustu. Vandinn er að stjórarnir á Landspítalanum og á heilsugæslunni kannast ekkert við málið. Er það þá skrítið að forráðamenn barnanna séu reiðir og hræddir? Nei, auðvitað ekki.

Ég skora á Jóhönnu að fara í málið strax. Það þarf að bera salt á velferðarbrúnna.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.