Hoppa í efni

Hagsmunasamtök barna bjóða ekki fram til Alþingis

Sigurður Hólm Gunnarsson | 09.04.2013

Ég veit að kosningabaráttan er hátíð sjálflægninnar þar sem fólk keppist um að fjalla um eigin einkahag. Allir vilja skattalækkun og skuldaniðurfellingu. Sérstaklega þeir sem eiga nóg af eignum og tóku sem mesta áhættu. Nú ætla ég ekki að draga í efa að margir eiga um sárt að binda fjárhagslega eftir hrunið sem þeir báru ekki ábyrgð á með beinum hætti. En megum við líka tala um önnur mikilvæg mál?

Þeir þjóðfélagsþegnar sem eiga hvað erfiðast uppdráttar eru þeir hinir sömu og fá litla umfjöllun í fjölmiðlum og nánast enga frá stjórnmálamönnum. Veikir, aldraðir og börn fá varla að vera með fyrir kosningar.

Ég vinn með börnum. Börnum sem geta ekki búið heima. Börnum sem verða fyrir ofbeldi. Börnum sem beita ofbeldi. Börnum sem eru andlega veik. Börnum sem þurfa sárlega á úrræðum að halda sem ekki eru til. Hvers vegna? Vegna þess að börnin hafa ekki kosningarétt og þau mynda lélegan þrýstihóp.

Ekki einn einasti stjórnmálaflokkur fjallar um málefni barna af neinu viti. Ekki einn einasti stjórnmálamaður hefur reiknað út hvað þarf nákvæmlega að gera fyrir börn í vanda strax eftir kosningar. Ég efast reyndar um að margir í pólitík viti mikið um hvernig staða barna er í þessu samfélagi okkar.

Ekkert InDefence hefur verið stofnað til að verja réttindi barna. Hagsmunasamtök barna bjóða ekki fram til Alþingis og Félag íslenskra barna (FÍB) er ekki til. Á kosningafundum rífast stjórnmálamenn ekki um hvernig eigi að vernda börn í okkar samfélagi. Nánast enginn stjórnmálamaður heimsækir meðferðarúrræði (sem eru of fá), lokuð úrræði og sambýli (sem eru ekki til) eða skammtímaheimili fyrir börn- og unglinga og kjósendur mæta ekki í röðum á kosningafundi til að krefja stjórnmálamenn um svör um hvernig megi efla barnavernd.

Níutíu milljónir á að setja í fjögur hundruð metra hjólreiðastíg við Norræna húsið og 150 milljónum skal veitt aukalega til Hörpunnar. Á meðan er töluvert úrræðaleysi þegar kemur að málefnum barna í vanda. Mikilvægara virðist vera að verja Eldborgina en Skjaldborgina. Með þögn sinni virðast nánast allir sammála um það. Steinsteypan skiptir meira máli en börn.

Afskrifa á skuldir heimilanna um 300 milljarða á meðan það er nánast ómögulegt að fjármagna nauðsynleg úrræði fyrir börn. Samt bera skuldarar í það minnsta einhverja ábyrgð á eigin skuldum á meðan börn bera ekki neina ábyrgð á eigin aðstæðum.

Höfundur er forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík

p.s. ég spái því að fáir nenni að lesa grein sem fjallar um málefni barna en ekki um skuldaniðurfellingu.

Skoða 5 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Lára Elín Guðbrandsdóttir 9. apríl 2013 · á Facebook

    Er svo sammála að börnin eru gleymd í þessu þjóðfélagi sem einkennist af hraða og óendanlegri ást á dauðum hlutum sérstaklega börn sem eiga erfitt.

  2. Kristín Elfa Guðnadóttir 9. apríl 2013 · á Facebook

    Flott grein, takk. Hér er frambjóðandi sem hefur alla ævi barist fyrir bættum hag barna og ungmenna, nú síðast með baráttusíðu á fb um málefni barna og ungmenna í geðvanda, áður með endalausum skrifum, m.a. í tímaritinu sem ég stofnaði ásamt tveimur vinum fyrir um 25 árum, pistlum, þáttagerð ofl. Annar pírati er búinn að stofna málefnahóp um barnavernd innan okkar raða og enn annar er að vinna stefnudrög um lýðræði þessa aldurshóp, sjálf var ég að vinna stefnudrög um aðgerðir til að uppræta fátækt þar sem mikið er komið inn á börn og ungmenni. Það er mikill áhugi á hagsmunum barna í hópi pírata.

  3. Linda Johannsdottir 9. apríl 2013 · á Facebook

    Takk fyrir að minna okkur á þetta Sigurður.

  4. Gudmundur Ingolfsson 9. apríl 2013 · á Facebook

    Svo satt hjá Sigurður Hólm Gunnarsson

    "Þeir þjóðfélagsþegnar sem eiga hvað erfiðast uppdráttar eru þeir hinir sömu og fá litla umfjöllun í fjölmiðlum og nánast enga frá stjórnmálamönnum. Veikir, aldraðir og börn fá varla að vera með fyrir kosningar."

  5. Hjörleifur Harðarson 9. apríl 2013 · á Facebook

    flott grein hjá þér og mjög vert málefni ...

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.