Hoppa í efni

Gyðingahatur og helförin

Sigurður Hólm Gunnarsson | 06.04.2005

Ég mæli eindregið með ágætri grein Egils Helgasonar “Ísland, zíonismi og gyðingahatur” sem er að finna á vefsíðu hans. Sérstaklega er áhugaverð umræðan sem hefur skapast um greinina. Of algengt er að fólk geri ekki greinarmun á gyðingum, Ísraelsstjórn og Ísraelum. Margir sem hafa andstyggð á stefnu Ísraelsstjórnar yfirfæra vanþóknun sína yfir á alla gyðinga eða alla Ísraelsbúa sem er afar ósanngjarnt. Í umræðunum er einnig fjallað um helförina og þá undarlegu skoðun sumra að hún hafi ekki átt sér stað.


Ég mæli með bókunum Denying History og Why People Believe Weird Things eftir efasemdarmanninn Michael Shermer fyrir þá sem hafa áhuga á gagnrýnni umræðu um helförina. Shermer fjallar ítarleg um málflutning þeirra sem vilja afneita helförinni og hvers vegna þeir hafa rangt fyrir sér að nær öllu leyti.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Þórður Sveinsson 6. apríl 2005

    Ég tek undir með þér að þetta sé fín grein hjá Agli. Annars er mjög auðvelt að falla í þá gryfju að segja „Ísraelar“ þegar í raun er átt við Ísraelsstjórn en ekki þjóðina í heild sinni. Egill féll reyndar sjálfur í slíka gryfju – en það var einmitt tilefni þeirra umræðna sem þú vísar til – þó svo að hann bendi sérstaklega á það í grein sinni að gera verði þennan greinarmun. Þannig að það ber að varast að oftúlka einstök ummæli og gæta þess að skoða þau í samhengi.

    Annars breytir þetta því ekki að það er raunverulega til fólk sem gerir ekki greinarmun á Ísraelsríki, Ísraelum og gyðingum. Þannig hef ég oftar en einu sinni heyrt dagfarsprútt fólk segja eitthvað á þá leið að það hefði nú verið gott ef Hitler hefði tekist það ætlunarverk sitt að útrýma gyðingum. Ummæli sem þessi eru auðvitað skelfilega ósmekkleg og þeim til háborinnar skammar sem láta þau út úr sér. En þar að auki segja þau okkur kannski að dagfarsprýði þessa fólks segi lítið um innrætið – þetta séu sem sé úlfar í sauðargæru. Því er erfitt að komast hjá þeirri hugsun að ef einhver á borð við Adolf Hitler kæmist til valda myndi þetta fólk bjóðast til að gerast böðlarnir og útrýma hinum „óæskilegu“.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.