Ég missti því miður af göngunni í dag vegna veikinda. Mér finnst það sérstaklega leiðinlegt því ég var búinn að ákveða að ganga með Trans Ísland þetta árið. Ekki af því ég hafi einhver sérstök tengsl inn í trans samfélagið hér, heldur vegna þess að mér hreinlega ofbýður hatrið frá allt of mörgum samlöndum mínum gagnvart hinsegin fólki og þá sérstaklega trans fólki.
Stöndum saman með kærleikanum og ástinni og leyfum hatrinu aldrei að sigra!
Efnisorð: Mannréttindi og jafnrétti
