Hoppa í efni

Eru flokkspólitískir þrælar að drepa rökræðulistina?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 02.06.2014

Er rökræðulistin að deyja út á Íslandi eða hefur hún kannski aldrei verið áberandi á þessu skeri? Málsmetandi fólk ræðir mikilvæg mál með stælum, hroka og uppnefningum.

Allt of margir neita að færa, eða geta ekki fært, málefnaleg rök fyrir skoðun sinni en ráðast þess í stað á viðmælandann.

Sjálfur fell ég of oft í þessa gryfju en reyni þó yfirleitt að bakka og færa umræðuefnið á vitsmunalegra plan.

Ég fagna því þegar einhver bendir mér á rökvillur í mínum málflutningi eða gagnrýnir mig málefnalega. Að sama skapi er ég orðinn ansi þreyttur á að vera uppnefndur og hrópaður niður fyrir eitthvað sem tengist umræðuefninu ekki með beinum hætti.

Einnig er ég orðinn þreyttur á fólki sem gefur sig út fyrir að standa fyrir ákveðin prinsipp en getur aldrei rætt nein mál af neinu viti vegna flokkspólitískra hagsmuna. Pólitíkin er full af svona fólki. Flokkspólitískum þrælum sem taka bara þá opinberu afstöðu sem hentar þeirra flokki hverju sinni.

Þetta er ein ástæðan fyrir því að fólk nennir ekki að mæta á kjörstað.

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Ingibjörg Edda Bjorgvinsdóttir 2. júní 2014 · á Facebook

    Vel mælt.

  2. Halldór Fannar Sigurgeirsson 2. júní 2014 · á Facebook

    Þegar allt snýst um að vera MÁLSTAÐNUM trúr deyr allur sannleikur.

  3. Páll Pálsson 2. júní 2014 · á Facebook

    Ja ,,,,eg er sjalfur seku eg misi mig stundum ut i ad kalla folk illum nopnum ,,,,,,enn stundum er svo ervit ad gera thad ekki

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.