Hoppa í efni

Einlægur Bjarni Ben

Sigurður Hólm Gunnarsson | 12.04.2013

Viðtalið við Bjarna Benediktsson í þættinum Forystusætið á RÚV í gær var merkilegt. Þarna birtist einlægur, viðkunnalegur og jafnframt bugaður maður. Í fyrsta sinn hugsaði ég með mér að ég gæti kosið Bjarna Ben. Reyndar gæti ég aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn einfaldlega vegna stefnunnar og fortíðarinnar. En ég kann vel við einlægt fólk.

Svo held ég að Bjarni Ben frekar frjálslyndur maður í mjög íhaldssömum flokki. Ég held að hann sé ekki sammála stefnu flokksins í ýmsum veigamiklum málum, þar með talið Evrópumálum. Það hlýtur að vera erfitt að vera foringi í flokki sem er með galna stefnu. Ennþá erfiðara þegar samherjar ráðast að manni. Ég finn til með Bjarna þó ég finni ekki til með flokknum hans. Sjálfstæðisflokkurinn á ekki skilið meira fylgi.

Ummæli Bjarna Ben um Framsóknarflokkinn í gær voru góð. Tek undir þau:

„Það er erfitt að yfirtrompa þá sem ætla einfaldlega að leysa öll vandamál skuldsettra heimila“.

Það er auðvitað ekki hægt...

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Sigurdur Holm Gunnarsson 12. apríl 2013 · á Facebook

    Kannski segir Hanna Birna af sér. Það væri áhugaverð flétta...

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Stjórnmál og lýðræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.