Hoppa í efni

Eineltisdraugar

Sigurður Hólm Gunnarsson | 07.09.2009

Fyrir nokkrum dögum varð ég vitni að merkilegu samtali tveggja vina minna. Báðir þessir vinir mínir höfðu orðið fyrir einelti og öðru ofbeldi í barnaskóla, rétt eins og ég. Samtalið fjallaði um reynslu þeirra frá því kvöldinu áður. Það kvöld höfðu þeir rekist á einn gerandann sem gerði þeim lífið leitt fyrir hartnær 20 árum. Þeim var heitt í hamsi og sáu þeir mikið eftir því að hafa ekki tekið manninn og lúbarið hann. Lýsingarnar á því hvernig þeir vildu ganga í skrokk á manninum og niðurlægja hann voru ógnvekjandi, sérstaklega í ljósi þess að hvorugur þessara vina minna er þekktur fyrir ofbeldisverk. Þau eru orðin mjög mörg árin síðan ég átti mér fantasíur um ofbeldisverk gagnvart óvinum úr æsku. Sem betur fer er ég ekki reiður lengur.

Eineltisreynsla getur haft djúpstæð áhrif á þá sem verða fyrir henni. Ég veit að eineltisreynsla mín hefur haft meiri áhrif á mig en ég hef oft þorað að viðurkenna. Eineltið hefur greinilega líka haft áhrifa á vini mína. Það er ljóst þegar fullorðnir rólyndismenn tala af fullri alvöru um að berja einstakling sem fór illa með þá þegar hann var krakki, fyrir tveim áratugum síðan.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Einelti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.