Hoppa í efni

Einelti – Helvíti á Jörð

Sigurður Hólm Gunnarsson | 29.06.2002

Kápa heimildarmyndarinnar Einelti – helvíti á jörð.

Nú eru tökur á heimildarþættinum um einelti sem ég tek þátt í að framleiða svo gott sem búnar. Klippivinna og önnur nákvæmnisvinna er hafin. Við vonumst til að þátturinn verði að fullu tilbúinn við lok sumars, en framvindan fer svolítið eftir því hvernig okkur gengur að safna styrkjum. Þetta er búið að vera nokkuð dýrt og tímafrekt þannig að ekki veitir okkur af peningunum. Ég setti upp einfalda vefsíðu til að kynna þáttinn og er hana að finna á skodun.is/einelti. Allar athugasemdir eru vel þegnar. Maður er svolítið að opinbera sig þarna, og ég viðurkenni að það er svolítið óþægilegt.

Annars er ég mjög ánægður með það hvernig staðið hefur verið að gerð þáttarins. Strákarnir (Krissi, Bjössi og Siggi) hafa allir staðið sig frábærlega að mínu mati og hingað til hefur þessi vinna verið mjög áhugaverð og oft nokkuð skemmtileg. Þá er bara að vona að þátturinn verði til þess að vekja athygli á einelti og afleiðingum þess...

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Einelti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.