Hoppa í efni

Conversations with Carl Sagan

Sigurður Hólm Gunnarsson | 04.04.2008

Carl_Sagan_Planetary_SocietyNýverið lauk ég við að lesa bókina „Conversations with Carl Sagan“ sem, eins og nafnið gefur til kynna, er samansafn af viðtölum við þennan þekktasta vísindamann seinni ára. Carl Sagan lést árið 1996 og er þessi bók gefin út tíu árum eftir fráfall hans. Viðtölin í bókinni eru í tímaröð. Það fyrsta er tekið 1973 og það seinasta árið sem Sagan lést. Aðdáendur Sagan ætti ekki að láta þessa bók fram hjá sér fara. Það er einstök upplifun að lesa um hugmyndir Sagan um lífið, tilveruna, vísindi og trúna.

„The progess of science is littered with dead theories; they were maladapted.“ – Carl Sagan

Hér fyrir neðan er hægt að sjá upptöku af síðasta viðtalinu sem tekið var við Sagan og er einnig að finna í bókinni:

Vídeó 1/3

Vídeó 2/3

Vídeó 3/3

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sævar Helgi 9. apríl 2008

    Þetta er einmitt frábær bók, sammála því. Nýlega kom út önnur bók sem er ekki síðri en það er The Varieties of Scientific Experience: A Personal View of the Search for God. Er að lesa hana núna og hún er frábær eins og reyndar allar bækurnar hans. Hvet þig til að kíkja á hana.

  2. Sigurður Hólm Gunnarsson 9. apríl 2008

    Frábært. Ég er nefnilega sjálfur nýbúinn að lesa þá bók. Hún er mögnuð. Reyndar betri en þessi sem ég fjalla um hér. Umfjöllun um hana verður sett inn á Skoðun fljótlega 🙂

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.