Hoppa í efni

Biskupar Íslands eru okkar Kim Davis

Sigurður Hólm Gunnarsson | 29.09.2015

Kim Davis, kona með gleraugu, á ljósmynd lögreglu.Ein helsta hetja fordómafullra íhaldsmanna í Bandaríkjunum í dag er Kim Davis, sýsluritari í Kentucky. Davis varð fræg fyrir að neita að gefa út giftingarleyfi fyrir samkynja pör vegna þess að giftingar samkynhneigðra stangast á við trúarskoðun hennar. Á Íslandi myndi biskup Íslands (og staðgengill hans) kalla afstöðu Davis „samviskufrelsi“.

Vandinn er að þar sem Kim Davis er opinber starfsmaður er henni óheimilt að mismuna fólki, jafnvel þó að trúarskoðun hennar boði slíka mismunun. Því var Davis sendi í fangelsi í fimm daga fyrir að brjóta á samborgurum sínum.

Þjóðkirkjan á Íslandi er opinber stofnun. Prestar og biskupar eru á launaskrá ríkisins, starfsemi kirkjunnar er mikið til fjármögnuð af hinu opinbera auk þess sem Þjóðkirkjan nýtur sérstakrar verndar í sjálfri stjórnarskrá Íslands.

Að auki hafa prestar Þjóðkirkjunnar, rétt eins og vígslumenn hjá öðrum skráðum trú- og lífsskoðunarfélögum, lagalegt vald til að gefa saman fólk. Hjónavígslur trú- og lífsskoðunarfélaga er veraldlegur löggjörningur sem hefur raunveruleg áhrif á borgaraleg réttindi og skyldur.

Á meðan Þjóðkirkjan er fjármögnuð af hinu opinbera, vernduð í stjórnarskrá og hefur vald til að hafa áhrif á borgaraleg réttindi fólks á að sjálfsögðu að banna starfsmönnum hennar að mismuna fólki vegna kynhneigðar. Þetta ætti öllum að vera ljóst.

Öllum nema biskupi Íslands og staðgengli hans. Okkar Kim Davis.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Ásgrímur Jónasson 29. september 2015 · á Facebook

    Hvað er hjónaband, að fornu og nýju? Það er sáttmáli karls og konu um það að stofna til fjölskyldu.
    Hvað er fjölskylda? Fjölskylda er karl, kona og þeirra börn.
    Hvers vegna eru samkynhneigðir að reyna að gefa sínni sambúð þetta heiti, hjónaband. Því sætta þeir sig ekki við sína afstöðu og búa saman á þann hátt sem þeir kjósa en láta hjónabandið í friði? Það getur ekki verið markmið samkynhneigðra að stofna til fjölskyldu, til þess eru þeir ekki færir frá náttúrunnar hendi. og mér finnst þessi þráhyggja líkjast minnimáttarkend. Það er mín skoðun að þeir hætti nú að ráðast á hjónabandið, finni sér eitthvað nafn á sitt samband og fái það viðurkennt. Gjarnan má staðfesta þetta samband með vígslu eins og hjónaband. Þannig er það sambúð, byggð upp á sama hátt og hjónabandi og jafngilt því. Þetta er mín skoðun og þau rök að allar skoðanir sem ekki hugnast tilteknum hópi séu fordómar sætti ég mig ekki við. Í frjálsu þjóðfélagi hafa allir mann rétt á því að hafa skoðun.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (841) →

Fleiri greinar sem tengjast: Mannréttindi og jafnrétti

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.