Hoppa í efni

Bernie Sanders byltingin

Sigurður Hólm Gunnarsson | 03.02.2020

Í dag, 3. febrúar, fer fram fyrsta kosningin í forvali Demókrata fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum þegar kosið verður í Iowa fylki. Nýjustu spár benda til þess að sósíal demókratinn Bernie Sanders fái þar flest atkvæði.

Samkvæmt meðaltali kannana er hann með um 4% forskot á helsta keppinaut sinn Joe Biden í Iowa. Kosningin í dag gæti orðið tæp en Sanders á sannarlega góðan möguleika á að sigra.

Gengi Sanders í könnunum og fjáröflun er ævintýri líkast. Fyrir örfáum árum hefði engum dottið í hug að demókratískur sósíalisti, sem berst fyrir gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu til handa öllum (þar á meðal sálfræði- og tannlæknaþjónustu), niðurfellingu námslána og lána vegna heilbrigðiskostnaðar og róttækri umhverfisstefnu, ætti minnsta möguleika til að verða útnefndur forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum. Mekka kapítalismans.

Þetta gæti þó orðið raunin. Sanders hefur tekist að virkja fjöldann með einlægni og stefnufestu. Hann hefur safnað lang mest í kosningasjóð sinn með stuðningi almennings (hann tekur ekki við framlögum frá milljarðamæringum og stórfyrirtækjum). Enginn hefur nokkurn tímann fengið fjárstuðning frá svo mörgum einstaklingum í sögu kosninga í Bandaríkjunum. Þetta fjárstuðningskort segir allt sem segja þarf.

Eftir viku, 11. febrúar, verður svo kosið í New Hampshire og eru taldar mjög miklar líkur á að Sanders sigri þar, enda með töluvert forskot (+9%) samkvæmt könnunum. Á landsvísu er Biden enn með mest fylgi. 3,7% meira en Sanders. Fyrir stuttu síðan var Biden þó með um 15% forskot.

Þar sem forvalið fer fram yfir marga mánuði í fylkjunum skiptir staðan á landsvísu ekki svo miklu máli. Meira máli skiptir hvernig frambjóðendum gengur í fyrstu fylkjunum sem kjósa. Ef Sanders tekst að sigra í fyrstu tveim fylkjunum, Iowa og New Hampshire, er hann í ansi góðum málum því aðeins einu sinni á seinustu 40 árum hefur frambjóðandi hlotið útnefningu Demókrataflokksins eftir að hafa tapað bæði í Iowa og New Hampshire. Sá frambjóðandi sem kemur best út úr þessum tveimur fylkjum mun síðan án efa styrkja stöðu sína í fylkjunum sem eftir koma. Fólk á það til að stökkva á sigurstranglegasta frambjóðandann.

Svo er Sanders einnig í góðri stöðu, samkvæmt könnunum, í California sem er fjölmennasta fylkið í Bandaríkjunum.

Það verður spennandi að sjá hver niðurstaðan verður í Iowa í kvöld/nótt og svo í New Hampshire eftir viku. Vonandi verður loksins valinn sannur mannvinur, sem Bernie Sanders vissulega er, til að leiða Demókrataflokkinn til sigurs gegn Donald Trump síðar á árinu. Vonandi...

Þessi auglýsing lýsir Bernie Sanders vel:

Hér fyrir neðan má sjá spár frá því í dag, 3. febrúar 2020:

IOWA - kosið 3. febrúar (í dag, þegar þessi grein er birt)

Meðaltöl skoðanakannana (% atkvæða) undanfarna daga samkvæmt RealClearPolitics:

Línurit RealClearPolitics yfir fylgi frambjóðenda Demókrata í Iowa fyrir forkosningarnar 2020.

Bernie Sanders - 24,2 (+4,0)
Joe Biden - 20,2
Pete Buttigieg - 16,4
Elizabeth Warren - 15,6
Amy Klobuchar - 8,6

Líkur á sigri samkvæmt FiveThirtyEight:

Það eru 39% líkur á að Sanders fái flest atkvæði en 34% líkur á að Biden sigri. Buttigieg (14%), Warren (11%), Klobuchar (3%).

NEW HAMPSHIRE - kosið 11. febrúar

Meðaltöl skoðanakannana (% atkvæða) undanfarna daga samkvæmt RealClearPolitics:

Línurit RealClearPolitics yfir fylgi frambjóðenda Demókrata í New Hampshire fyrir forkosningarnar 2020.

Bernie Sanders - 26,5 (+9,0)
Joe Biden - 17,5
Elizabeth Warren - 14,3
Pete Buttigieg - 13,7
Amy Klobuchar - 6,7

Líkur á sigri samkvæmt FiveThirtyEight:

Það eru 58% líkur á að Sanders fái flest atkvæði en 20% líkur á að Biden sigri. Buttigieg (12%), Warren (10%), Klobuchar (1%).

CALIFORNIA - kosið 3. mars

Meðaltöl skoðanakannana (% atkvæða) undanfarna daga samkvæmt RealClearPolitics:

Línurit RealClearPolitics yfir fylgi frambjóðenda Demókrata í Kaliforníu fyrir forkosningarnar 2020.

Bernie Sanders - 25,8 (+4,8)
Joe Biden - 21,0
Elizabeth Warren - 19,8
Pete Buttigieg - 7,3
Michael Bloomberg - 4,3
Amy Klobuchar - 3,5

Líkur á sigri samkvæmt FiveThirtyEight:

Það eru 50% líkur á að Sanders fái flest atkvæði en 34% líkur á að Biden sigri. Warren (10%), Buttigieg (5%), Klobuchar (0,6%), Bloomberg (0,3%).

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.