Hoppa í efni

Aumingja- og hálfvitadýrkun á Íslandi

Sigurður Hólm Gunnarsson | 09.03.2011

Ég er orðinn dauðþreyttur á hetjufréttum og töffaramyndum af aumingjum, hálfvitum og siðleysingjum á Íslandi.  Sumir íslenskir fréttamiðlar virðast hafa pervetíska ánægju af því að upphefja sorann.

Englar Helvítis
Viðhafnarviðtöl eru tekin við forsvarsmenn íslensks mótorhjólaklúbbs sem nú hefur fengið fulla aðild að glæpasamtökunum Hells Angels. Háttsettir félagsmenn í Hells Angels hafa fengið dóma fyrir morð, manndrápstilraunir, ofbeldi, fíkniefnaviðskipti og aðra siðleysu. Góður félagsskapur það.

Ég er á því að einstaklingar sem eru félagar í samtökum eins og Hells Angels hljóti að vera siðlausir með öllu. Mér er algjörlega sama hvort einstaka félagar í „Hells Angels“ á Íslandi hafi gerst sekir um lögbrot eða ekki.  Félagið er þekkt glæpafélag í heiminum og það er nóg. Hvaða einstaklingur með siðferðisvitund vill kenna sig við slíkt félag?

Glæpamenn í sveitasælu
Glaðlegar töffaramyndir fylgja frétt um kynferðisafbrotamanninn Guðmund Jónsson (í Byrginu) og handrukkarann Annþór Karlsson. Þeir eru nú báðir vistaðir í lágmarksöryggis- og sveitasælufangelsinu Bitru. Enda hafa þeir báðir verið svo góðir og samviskusamir fangar.  Lýsingin á Bitru minnir fremur á lúxus sumarbústað en fangelsi. En þar er setustofa, eldhús, borðstofa og aðstaða til líkamsræktar. Fangarnir hafa nánast óheftan aðgang að síma. Þeir stunda nám, iðka tómstundir, líkamsrækt og íþróttir. Þar að auki hafa þeir rétt á útiveru. Aumingja þeir.

Í frétt um þá félaga segir:
„Guðmundur hefur komið sér vel fyrir í fangelsinu og sér meðal annars um að elda ofan í bæði fanga og fangaverði.“

Það eina sem vantar er krafa um að maðurinn sé boðaður í heimsókn á Bessastaði til að taka á móti Fálkaorðu.

Stjörnufréttir um ofbeldismenn með töff viðurnefni
Af einhverjum ástæðum keppast sumir fréttamiðlar um að segja í stjörnufréttastíl frá „afrekum“ ofbeldismanna. Við fáum að vita að Jón „stóri“, sem er  þekktur fyrir ofbeldi, misnotkun á stúlkum, vímuefnamisferli og eignaspjöll,  sé kominn með nýja kærustu og að ástin blómstri. Auðvitað fylgir mynd af gleðinni með. Vinur „stóra“ kallaður Dabbi „Grensás“ var svo víst að opna nýjan skemmtistað sem verður örugglega  vinsæll.  Gott hjá honum. Umræddur Dabbi hefur hlotið dóma fyrir mjög alvarlegar líkamsárásir. Það alvarlegar að mér er sagt að lögreglumenn og dyraverðir á skemmtistöðum séu skíthræddir við hann.

Hvers vegna er verið að segja svona fréttir af þessum vitleysingum? Hvers vegna birta fjölmiðlar myndir af þessum aumingjum brosandi með sætar stelpur sér við hlið? Af hverju eru „töff“ viðurnefni þessara manna notuð? Jón þessi er ekkert sérstaklega „stór“ og Dabbi er ekki gata í Reykjavík. Þetta eru ofbeldismenn og hrottar.

Glæpamenn gerðir að fyrirmyndum
Ég er á því að fréttaflutningur af þessu tagi þjóni engum öðrum tilgangi en að sveipa ofbeldi og soraskap hetjuljóma. Ég hvet blaðamenn að hætta að segja hetjufréttir af vitleysingum.

Skoða 189 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Eva 10. mars 2011

    Sammala, en thetta er ekki bundid vid Island.. og i sambandi vid HA tha er thad nu aldeilis flott ad vera med hrotta sem standast althjoda maelikvarda.. svona eins og ad na Olimpiu lagmarki i fantaskap.. en eg held ad um thetta snuist malid. Islendingar vilja ekki vera "a eftir odrum thjodum" og til ad sanna ad Reykjavik se nu alvoru heimsborg ber ad auglysa ad vid erum sko lika med alvoru glaepona og gotugengi, thurfi sko ekki ad missa af ad vera lamin, raendur, naudgad eda jafnvel drepin ef thu kemur til Islands.. her se sko bodid uppa "fulla thjonustu" i storborgar hasar..

    Held ad thetta se afleiding minnimattarkendar sem smathjod og thvi ad folk almennt thekkir ekki thann hrylling sem langvarandi ofbeldis og glaepastarfsemi hefur a menningu og ibuana sem thurfa ad thola thad.. Hafa ekki sed vidtol vid nogu margar gratandi maedur i sjonvarpi sem eru nybunar ad missa bornin sin i fikniefni, vaendi, skotarasir, fangelsisvistir thar sem doctorsgradur i glaepum og ofbeldi eru aunnar svo nokkud se nefnt.

    En hei, allir saman nu vera med og falla inni hopinn.. litil thjod getur sko alveg buid til storglaepona eins og storthjodir heimsins..!!

  2. Allan Morthens 10. mars 2011 · á Facebook

    Tek heilshugar undir þetta.

  3. Arnheiður Bergsteinsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Algjörlega sammála

  4. Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    gæti ekki verið meira sammála.

  5. Rannveig Hallvarðsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Mikið er ég sammála.

  6. Gudrun Elin Gudnadottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Einmitt!

  7. Margrét Perla Kolka Leifsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Algjörlega sammála!

  8. Kalla Lóa Karlsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Sammála. Þetta er til háborinnar skammar.

  9. Arni Þorsteinsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Blaðamenn sem skrifa um þessa fáráða eru stétt sinni til skammar.

  10. Bjarnheiður Bjarnadóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Það er skrýtið að vista kynferðisafbrotamenn á hálfgerðu lúxushóteli meðan almennur láglaunamaðurinn á varla í sig og á.

  11. Kristin Björk Samuelsdottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Orð í tíma töluð.

  12. Anna Dís Eydal 10. mars 2011 · á Facebook

    Ég gæti ekki verið meira sammála þér Siggi.

  13. Helga Nina Heimisdottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Orð í tíma töluð, ég veit ekki hvort hægt er að tala um að eiturlyfjaneitendur séu siðblindir því þeir hafa ekki sama skyn og aðrir, svo má deila um það hvort þeir séu ekki vitleysingar sem tak inn eiturlyf því þau gera fólk geðveitk, óútreiknanleg, hættulegt sjálfumsér og öðrum siðblindingja. Sterar eru líka eiturlyf.

  14. Ástríður Eyjólfsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    algjörlega sammála en ekki hissa..þetta er landlægt..sjáið stjórnmálapakkið,útrásarvíkingana, bankahyskið, lífeyrissjóðina og lengi má teljaojj...þetta erum við að púkka upp á..þurfum að fara í endurforritun!!

  15. Þorgerður Erla Jónsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Er svo sammála, Þessum hrottum er hampað eins og hetjum

  16. Kristjana Jónsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Mér finnst að konur eigi að sýna stolt og velja sér betri mannsefni

  17. Þóra Emilsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Ég er hætt að lesa DV og Pressuna t.d. því þessir menn eru daglegir gestir í þessum blöðum. Mig langar ekki til að vita hvað þeir eru að gera. Þetta eru ljótir samviskulausir menn.

  18. María J. Hauksdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Vel skrifuð grein og ég er þér hjartanlega sammála.

  19. Oddny Osk Sverrisdottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Takk.

  20. Gunnar Eyfjörð Ómarsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Guð minn góður, hvað ég er hjartanlega sammála því sem þarna kemur fram.

  21. Hjalti Ómar Ágústsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Amen á eftir efninu.

  22. Guðbjörn Grímsson 10. mars 2011 · á Facebook

    alveg er ég samála......en því miður sorinn selur

  23. Hafdis Hardardottir 10. mars 2011 · á Facebook

    takk

  24. Ingibjörg Sigurðardóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Nákvæmlega:)

  25. Rúna Pétursdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Svoooooooo sammála. Endalaust verið að upphefja þessa ræfla.

  26. Húnbogi Valsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Hjartanlega sammála þessarri grein og góðar athugasemdirnar fyrir neðan.

  27. Geiri Braga 10. mars 2011 · á Facebook

    100% Sammála.

  28. Hrafnhildur Mjoll Geirsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Mikið er ég sammála greinahöfundi !

  29. Sigurdur Bibbi Sigurdarson 10. mars 2011 · á Facebook

    Rosalega er ég sammála. Einnig þegar fréttir fjalla um það hvernig á að brjótast inn í íbúðir, tengja framhjá í bílum, búa til fíkniefni, sýndar slóðir á vefsíður sem eru óæskilegar og fleira. Þetta er orðin öfugmælafréttatímar... þeir sem brjóta af sér eru sýndir í dýrðarljóma og almenningi er ráðlagt hvernig þeir eigi að hegða sér til að verða eins og þessir menn. (mannleysur)

  30. Ingi Bergþór Jónasarson 10. mars 2011 · á Facebook

    það sem er vandamálið er að það eru alltaf einhverjir sem vilja lesa um þessa glæpona og meðan svo er þrífast blöð og tímarit á þessum ósóma ,hættum að lesa þessi blöð hættum að horfa á fréttir í sjónvarpi þar sem þessum úrrhökum er hampað !

  31. Einar Ingi Einarsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Mikið afskaplega er ég sammála þessum orðum. Tek undir það heils hugar að hvetja blaða- og fréttamenn að hætta að segja hetjufréttir af vitleysingum.

  32. Geirlaugur Geiri Blöndal 10. mars 2011 · á Facebook

    Sammála fyrir allan peninginn

  33. Hallur Guðmundsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Sammála. Frekar vil ég fá fréttir af rúðuúða!

  34. Hildur Torfadóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    TRUUUUE... þetta er það sem ég HATA við þetta land

  35. Brynhildur Barðadóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Svo sammála...

  36. Brynja Dögg Ingólfsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Rosalega er ég sammála þessu.

  37. Jokka G Birnudóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Heyr heyr!

  38. Steinunn Jónsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Sammála því að óþarfi sé að hampa þessum harðsvíruðu glæpamönnum- leyfa þeim að taka út sína refsingu í friði. Fangelsi eiga að vera betrunarvist og það má ekki gleyma því að einn góðan veðurdag eru þessir menn mættir útí þjóðfélagið aftur. Vilja ekki allir að þeir séu örlítið betri menn þegar þeir koma út heldur en þegar þeim var stungið í steininn. Mér finnst alveg frábært hvað þeir hafa það fínt á Bitru. Ekki sammála því að kalla ógæfumenn aumingja og vitleysingja.. því í gegnum tíðina hafa þessi uppnefni (því miður) verið notuð um þroskaheft fólk sem hefur ekkert af sér gert.

  39. Franz Gunnarsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Allir rosa sammála en staðreyndin er einfaldlega sú að fréttir um þessa nafntoguðu menn fá mestan lestur á þessum fréttamiðlum! Fréttamiðlar fjalla um það sem fólk hefur áhuga á að lesa og þetta eru oftast nær mest lesnu fréttirnar. Í kommentkerfum kemur svo fólk sem er búið að lesa þessar fréttir og vælir yfir því af hverju er verið að skrifa þær þegar það er í raun að leggja sitt á vogaskálarnar til að gera þær svo vinsælar þannig að miðilinn skrifar fleiri svona fréttir. Semsagt fólk getur sjálfu sér um kennt með því að vera lesa þær og væla svo. Hugsið aðeins um það næst þegar þið smellið fréttir um þessa menn.

  40. Jóhannes Bergþór Jónsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Eins og talað úr mínu hjarta!

  41. Svava Brynja Bjarnadóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Orð í tíma töluð,

  42. Einar Ingi Ágústsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Hverskonar ritstjórnarstefna er það að leyfa blaðamönnum að fjalla um þessa aumingja eins og þeir séu í lagi?

  43. Guðmundur Jónsson 10. mars 2011 · á Facebook

    segið frá einhverjum sem bjargaði ketti úr tré

  44. Tinna Snædís Bjarnadóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Það á bara að senda þessa menn út á eyju, búa til okkar eigið alcatraz fangelsi hér og leyfa þeim að dúsa inní klefum 23 tíma og klukkustund úti, nkl eins og það á að vera, sjónvarpslausir og frekar með aðgang að tíkallasíma en einhverju lúxus hóteli eins og við erum með hér. Enda ísland þekkt fyrir að meirað segja útlendingar vilji frekar taka út dóm hér en að vera framseldir..kio briggs eða hvað hann hét..muniði eftir þeim vitleysing? Vil frekar að skattpeningar fari í að veita betri aðstöðu fyrir aldraða, og leiksskóla og skóla þjóðfélagsins, en svona menn.

  45. Valgerður Magnusdottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Vel sagt og allt rétt, hætta þessum fréttaflutningi af glæpamönnum sem líta stórt á sig, loka þá inni og henda lyklinum.

  46. Anna Lucy Muscat 10. mars 2011 · á Facebook

    Amen!!!

  47. Hulda 10. mars 2011

    Algerlega sammála þér Siggi. Hér eru hins vegar ágætis hugleiðingar Sölva Tryggvasonar á pressunni: http://www.pressan.is/pressupennar/LesaSolvaTryggvason/klamid-er-lika-a-ykkar-abyrgd .

  48. Regína Sigurðardóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    heyr heyr

  49. Jón Karlsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Bonnie og Clyde sindrom 🙁 dapurt

  50. Aðalsteinn Kjartansson 10. mars 2011

    Þetta er spurning að segja frá hlutunum og leyfa fólki að dæma sjálft. Hefði fréttirnar af Hells Angels ekki verið sagðar hefðir þú líklega ekki vitað af því að Hells Angels hefði skotið rótum á Íslandi. Sama með Guðmund í Byrginu og Annþór Karlsson. Það er klárlega fréttamál að dæmdur kynferðisbrotamaður og fíkniefnainnflytjandi fái að slaka á í sveitinni í opnu fangelsi.

  51. Karen Hjartardóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Já, alveg sammála! En ekki eru þetta einhverjar nýjar fréttir.

  52. Drofn Gudmundsdottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Innilega sammála .. hvernig geta þessir fréttamenn litið í spegilinn að kvöldi dags?

  53. Erlingur Guðjónsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Frábærlega skrifuð grein,þetta er alveg hárrétt, það sem verra er þetta er á fleiri stigum þjóðfélagsins. Mér finnst fjölmiðlar ekki vera nægilega hlutlausir. Þeir eru á kaf í pólitík, og hampa svo sínum hestum alveg hægri vinstri, alveg óþolandi rugl.
    Stóðu sig ekki fyrir hrun í almennri upplýsingagjöf til almennings, og hafa ekki staðið sig eftir það heldur.
    Þarf ekki að hreinsa þar út bara rétt eins og í bönkunum og á Alþingi? 🙂

  54. Guðný Anna Arnþórsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Öldungis sammála þér, Sigurður!

  55. Frida Hauksdottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Algjörlega

  56. Kristján Jón Sveinbjörnsson 10. mars 2011 · á Facebook

    ...eru þá ekki þessir snillingar sem stjórna fjölmiðlunum,andlega tengdir vitleysingunum...?

  57. Sigurður Hólm Gunnarsson 10. mars 2011

    Aðalsteinn - Það skiptir öllu máli hvernig er sagt frá þessum vitleysingum. Mjög margar fréttir eru skrifaðar eins og markmiðið sé að upphefja þetta lið. Það er óþolandi.

  58. Arna Kristín Gísladóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Góð grein

  59. Árni Gunnarsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Hvert orð satt.

  60. Freydís Guðný Hjálmarsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Sammála

  61. Benjamín Baldursson 10. mars 2011 · á Facebook

    DV lifir á soranum í þjóðfélaginu.

  62. Kári Sævar Elíasson 10. mars 2011 · á Facebook

    WORD!!

  63. Lilja Björk Runólfsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Algjörlega sammála! Óþolandi fréttamennska! Að vísu hef ég ekkert á móti Bitru og er í raun mjög hlynnt betrun fanga.

  64. Hörður Hákonarson 10. mars 2011 · á Facebook

    Sammála

  65. Sveinn Hermann Þorbjörnsson 10. mars 2011 · á Facebook

    heyr, heyr

  66. Elías Halldór 10. mars 2011

    Það er eins og fólk finni ekki mun á því að vera frægur og alræmdur. Það virðist nóg að vera víðkunnur. án tillits til ástæðna, og fólk slefar yfir manni. Maður bara bíður eftir því að það komi drottningarviðtal við Steingrím Njálsson.

  67. Ásta Knútsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Vel mælt og orð í tíma töluð!

  68. Andri Reynir Einarsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Fín grein, en vil aðeins benda á að Jón stóri er MJÖG stór, þú hefur greinilega aldrei hitt hann ;P

  69. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Heyr heyr!

  70. Sandra María Sigurðardóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Word!

  71. Jón Guðmundur Guðmundsson 10. mars 2011

    Aðalsteinn. Þú segir að ef þessar fréttir væru ekki skrifaðar myndum við ekki vita um hagi. Annþórs og Gumma í Byrginu. Who bloody cares. Nóg er að flytja fréttir af því að tveir glæpamenn séu dæmdir til fangavistar. Við þurfum ekki að vita af klósettferðum þeirra. 
    Einn smá misskilningur enn. Hells Angels eru tæplega mótorhjólaklúbbur. Það er vanvirðing við okkur hin sem erum í klúbbum að kalla þá mótorhjólaklúbb. Ef þeir spiluðu skák á fundum, væru þeir þá skákklúbbur (efast þó reyndar um að þeir geti lært mannganginn...en kannski að drepa)? H.A. er glæpafélag og ekkert annað.
    Að öllu leiti sammála þér Sigurður. Óþolandi fjölmiðlaforheimska sem þetta er og lýsir vel andlegum þroska þeirra blaðamanna sem við því miður sitjum uppi með.

  72. Birna Dögg Guðmundsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Mikið er ég sammála !! Umfjöllunin um þessa drullusokka kæfir alla aðra umfjöllun og tekur yfir fréttir, fréttavefi, slúðurblöð og slúðurvefi !!

  73. Natalía Ósk Ríkarðsdóttir Snædal 10. mars 2011 · á Facebook

    Allgerlega sammála!!! Þetta er ekki góð fyrirmynd.

  74. Inger Ericson 10. mars 2011 · á Facebook

    eins og talað úr mínu hjarta

  75. Hjörleifur Árnason 10. mars 2011 · á Facebook

    Jæja, þá er einni greinn minna fyrir rmig að skrifa. Vel gert Sigurður.

  76. Albert Svan 10. mars 2011 · á Facebook

    Heilalaus kaupum við þessi blöð og viðhöldum þar með bjánaskapnum.

  77. Steinar Harðarson 10. mars 2011 · á Facebook

    Þetta er góð grein og sönn

  78. Hulda Guðmundsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Hjartanlega sammála þér og góð komment hér fyrir neðan

  79. Daði Guðbjörnsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Já þetta er ömurleg ímyndasmíð

  80. Gunnar Þórarinsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Þetta er nú kallað ræfladýrkun á Íslensku

  81. Jóhanna Gréta Guðmundsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Hjartanlega er ég þér sammála!!!

  82. Hulda Kolbrún Guðjónsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Ég er hætt að skilja fréttamennsku í dag. Það er ekki nóg að afbrotamenn séu upphafnir til skýjanna, heldur virðist flest vera étið hrátt upp eftir viðmælendum og ótrúlegasta vitleysa birt. Hafa fréttamenn ekki lengur tíma til að rannsaka málin og hafa betur það sem rétt er, eða að leita eftir fleiri hliðum á málum? Ef ekki, er þá ekki ástæðulaust að vera með fréttafólk yfirleitt, fyrst þau eru bara "skilaboðaskjóður"? Má ekki bara ráða almennt skrifstofufólk sem kann á upptökutæki, ljósritunarvél og tölvu?

  83. Kjartan Saemundsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Einn var sendur í útekt á Kvíabryggju og byrjaði á því að hringja í Rauðakrossinn og panta almennileg rúmm til að sofa í. Því var reddað, fyrir allt fangelsið. Síðan setti gaurinn hina fangana í vinnu við að kjarnabora stórgrýtið í fjörunni til að fá útrás fyrir sköpunargleði sína.
    Þegar hann losnaði úr jeilinu þurfti nokkra trailera fyrir farangurinn sem fanginn hafði með sér þaðan. Karlinn vildi ólmur komast í gamla jobbið sitt og fékk flokksbróður sinn, frænda formansins, til að fixa fyrir sig forsetanáðun. Því var reddað í hvelli þegar fosstinn brá sér af bæ til að gaspra og gjamma í útlandinu.
    Kappinn situr nú á hinu sundurspillta alþingi Bananalýðveldisins Ísland eins og ekkert hafi í skorist. Hann er víst enn að flytja grjót skillst mér . . . . . . .

  84. Jóhanna Pálmadóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    ...þetta er bara ekki í lagi!

  85. Gudrun Marta 10. mars 2011 · á Facebook

    Þakka þér þessa grein hún erþví miður 100% sönn. Það er illa farið fyrir blaðamönnum sem virðast lifa í skjóli þessara glæpamanna.

  86. Jóhanna Ýr Jónsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Góður punktur - skil þetta ekki - af hverju eru ekki meiri fréttir af fólki sem er að gera alvöru hluti? Áður en kerfið sprakk var líka endalaust verið að hampa peningamönnunum, sífelldar myndbirtingar af hálfgeðsjúkum peningaeyðslu partýjum - það sendi nú all hressilega skemmtileg skilaboð út í þjóðfélagið - eyða eyða eyða - þú ert ekki maður með mönnum nema berast hátt. Virðist sem íslenskt þjóðfélag hampi ekki þeim sem eru "alvöru" fólk - þau eru líklega ekki nógu djúsí og krassandi?

  87. Gudrun Marta 10. mars 2011 · á Facebook

    Við verðum að muna að það eru blaðamenn sem skrifa fréttir. Ekki blöðin sjálf.

  88. Eyvindur Karlsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Heyr, fokking heyr!

  89. Brynjólfur Jón Garðarsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Hjartanlega sammála

  90. Heimir Arnar Birgisson 10. mars 2011 · á Facebook

    Það hefur því miður löngum loðað við íslendinga að velta sér upp úr lágkúru og lágmenningu. Það selur og því hafa fjölmiðlar fetað þessa slóð. Ég er hjartanlega sammála öllu því sem í greininni stendur, en eftir situr sú staðreynd að sú ónáttúra að finnast aumingjar vera töff býr einfaldlega í þjóðarsálinni. Þetta var einhverntíman kallað að snobba niðurfyrir sig og án þess að snobb hafi nokkurntíman þótt merkileg iðja, þá er þessi tegund snobbs heldur aumari.

  91. Margrét Ragúels Jóhannsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Svo sammála

  92. Alva Hætt Á Þessu 10. mars 2011 · á Facebook

    Hættið að segja fréttir af vitleysingjum.

  93. Jon Helgason 10. mars 2011 · á Facebook

    hjartanlega sammala

  94. Gisli Kristjánsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Ekki það að ég ætli að vera að trana mér eitthvað fram, en ég hef 10 eða 12 sinnum verið kosinn lyftingamaður ársinns, verið norðurlandameistari, 5sinnum í öðru sæti á norðurlandamótum, 18sæti á heimsmeistaramóti og fl og fl,, Fyrir litla þjóð telst þetta vera nokkuð góður árangur, en hvað skyldu nú margir vita hver ég er? Þeir eru ekki margir, og ég er ekki einn um að vera í þessari stöðu, gæti nefnt marga aðra í viðbót sem hafa verið að standa sig vel en það fær enga umfjöllun.Vildi bara benda á þetta í sambandi við þessa grein hjá Sigurði Holm, það er oft eitthvað bogið við val á fréttaefni fjölmiðla.

  95. Soley Ing 10. mars 2011 · á Facebook

    Þvílíkt rugl og skítamenning að glæpamenn og hyski séu CELEBS á Íslandi, hvað er að ske? Dapurt bara..

  96. María Rós Valgeirsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Það var mikið að einhver þorir að tjá þessa skoðun..burt með þessa plágu

  97. Sonja Ísafold 10. mars 2011 · á Facebook

    Innilega smmála.Mér finnst skorta jákvæðar geðifréttir í fjölmiðlum,mætti vera minna af hinum neikvæðu eða sleppa þeim alveg.

  98. Ásta Bærings Svavarsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Hjatanlega sammála!

  99. Sigríður Björnsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Þetta kallast réttarfarsríki þar sem gerandinn fær allann rétt en þolendanum er ýtt ennþá neðar. Horfum á hvað gerist í Íslenskum réttarsal! Þar fær þolandinn einn lögfræiðng en gerandinn er með sálfræðing, lögfræðing og jafnvel ennþá fleiri fræðinga sem þjóðin borgar fyrir orðalaust. Hvað gerist ef ungt fólk sem hefur ekki efni á námi fer að hugsa um að brjóta illilega af sér til þess að fá frítt uppihald og frían skóla í fangelsi? Hefur einhver hugsað í hvaða átt þetta réttarfarsríki er að leiða okkur?

  100. Eygló Rut Óladóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Ef þetta er ekki bara komið í hring alltsaman og við komin aftur á víkingaöld!

  101. Edda Jónsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    flott grein

  102. Rósa Stefánsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Hjartanlega sammála þessu. Ótrúlegt að upphefja þessa tegund af manneskjum.

  103. Kristinn S Jóhannsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Heyr heyr góð grein !

  104. Emilía Og Karl 10. mars 2011 · á Facebook

    Ég er hjartanlega sammála þér Sigurður Hólm haltu áfram að láta heira í þér

  105. Egill Orri Sigurðsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Í litlu sammfélagi sem okkar hlítur að vera hægt að finna fréttir af velferð litla mannsins í stað umhyggju glæpamanna. Það er kannski auðveldara að grúska í gögnum lögreglurnar en að fara út og finna lesbært efni. En, ef ekki, þá bíða blaðamenn spenntir eftir símhringingum frá fólki með "frétt" sem þessi: http://mbl.is/.../05/15/husky_hundur_redst_a_litinn_hvolp/

  106. Gudny Jenny Asmundsdottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Sammála

  107. Elsa Rós Ragnarsdóttir-Välimaa 10. mars 2011 · á Facebook

    Heyr heyr! Takk fyrir þetta! 🙂

  108. Magnús Georg Hrafnsson 10. mars 2011 · á Facebook

    góð grein .mjög légleg blaðamenska,eitt finst mér vanta i umræðuna hér.það er rótinn,hversvagana hagar fólk sér svona.,eins sem dæmi.hundur sem bitur ,. er það hundurinn sem er slæmur eða sá sem elur hann ??.

  109. Ríkharður Egilsson 10. mars 2011 · á Facebook

    http://www.dv.is/.../handrukkarinn-sem-var-til-fyrirmyndar/

  110. Helga Sigríður Árnadóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Algjörlega sammála

  111. Auður Ingibjörg Hafþórsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    alveg sammála þér

  112. Ásdís Lára Runólfsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Því miður er þetta afsprengi "vitleysingavæðingar" á heimsvísu. Við erum komin með kynslóðir sem hafa alist upp við MTV sjónvarpsefni og svo kallaða raunveruleikaþætti. Fólk gerir hvað sem er til að verða frægt, meira að segja koma nakið fram:) Veraldarvefurinn hefur svo bætt gráu ofan á svart. Ég, persónulega, les ekki slúður, hlusta ekki á slúður og ber ekki slúður milli manna þ.a.l. veit ég ekkert um neitt af þessu fólki og gæti ekki verið meira saman. Ég tilheyri algjörum minnihlutahópi. Í dag er umfjöllun um aumingja, glæpamenn og annað skítapakk það sem meirihluti fólks vill lesa, heyra og sjá:(

  113. Elva Dís Hekla Stefánsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    MJÖG FLOTT GREIN OG SVO SAMÁLA...

  114. Johann Finnsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Mikið rétt !

  115. Anna Ingvadottir 10. mars 2011 · á Facebook

    algerleag sammála, af hverju eru fjölmiðlar að hampa þessum mönnum

  116. Jóhann Björnsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Þetta segir okkur ansi margt um áherslur fjölmiðlanna og fólksins sem þar starfar.

  117. Kristján Jóhann Bjarnason 10. mars 2011 · á Facebook

    Endilega lesa og deila

  118. Steinunn Helga Sigurdardóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    já

  119. Sigga Gunnars 10. mars 2011 · á Facebook

    sammála

  120. Sigrún Stefanía Valdimarsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Orð í tíma töluð. Verulega góð grein!

  121. Daníel Freyr Daníelsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Svona fyrir utan það að Jón er jú reyndar sérstaklega stór og með ógnandi nærveru þá er ég algjörlega sammála þessu. Upphafning á þessum einstaklingum í fjölmiðlum er í sjálfu sér form á siðblindu fréttamannana sem um þá skrifa á þennan hátt.

  122. Í Minningu Haraldar Haraldssonar 10. mars 2011 · á Facebook

    Til þess eru vítin að varst þau" segir máltækið og það er þaðsem verið er aðg gara þarna!!!!

  123. Stefán Elí Gunnarsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Þetta hef ég aldrei þolað, fjölmiðlar á Íslandi eiga ekki að vera leið hálfvita til frama og frægðar... Hálfvitar!

  124. Hafsteinn Hafliðason 10. mars 2011 · á Facebook

    Svo sannarlega sammála - og einhvern veginn er dýrðarljómi djöfulsins farinn að skína út úr allri opinberri umræðu um flest það sem skiptir okkur máli. Brennisteinslogar bölvirkjanna er orðið ljósið í myrkrinu! ...

  125. Kolla Arnad 10. mars 2011 · á Facebook

    Hafa fjolmidlar ekkert merkilegra ad skrifa um??

  126. Sigridur Gudnadottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Nákvæmlega !!!! mikið er ég sammála

  127. Una Rós Evudóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    mér finst reyndar ágætt að vita hvar þeir eru staddir, hvernig þeir líta út og hvað þeir eru að gera, þá veit ég hvert ég og mín börn erum EKKI að fara

  128. Eygló Haraldsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    svo sammála...

  129. Maria Gisladottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Takk!

  130. Kristbjörg Jonsdottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Þetta eru sannarlega orð í tíma töluð 🙂

  131. Sigurvin Kristjónsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Þetta er hverju orði sannara,íslenskirfréttamenn eru vonlausir

  132. Sigurvin Kristjónsson 10. mars 2011 · á Facebook

    þetta er alveg satt,Íslenskir fréttamenn eru alltaf að hefja soran upp til skýanna,þeir eru vonlausir

  133. Guðlaug Úlfarsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Afar góðar og þarfar pælingar um ábyrgð fjölmiðla.

  134. Eyjólfur Kári Friðþjófsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Ég veit ekki betur en að einn af þessum drengjum sé búinn að taka sig allhressilega saman í andlitinu og hafi ekki snert áfengi né vímuefni í meira en eitt ár! Mest alla vitleysuna má rekja til fíknisjúkdóms sem að stjórnar or eyðileggur líf þeirra sem að taka ekki ábyrgð á honum. Er batnandi mönnum best að lifa?

  135. Ragnheiður Kr Guðmundsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Jæja, það er einhver sammála mér!!

  136. Berglind Svanlaugsd 10. mars 2011 · á Facebook

    svo sammála þér!!

  137. Eysteinn Sigurdsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Það væri gaman að vita hverjir eiga DV. í raun og veru. ????

  138. Jakob S Magnússon 10. mars 2011 · á Facebook

    Blaðamenn sjá hvursu margir skoða hverja einstaka grein.
    Við erum oft að fæða þá á því, hvursu forvitin við erum.
    Ég er á því að það sé erfitt að laga þetta hjá þeim, án þess að þeir sjái fáránleikan hjá sér sjálfum.

  139. Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    vá svoooo sammála !

  140. Lilja Pétursdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Mikið er ég sammála þessu...tek ofan fyrir þér og hana nú.

  141. Steingrimur Og Grace 10. mars 2011 · á Facebook

    hárétt

  142. Solveig Palmadottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Snilldar pistill!! Orð í tíma töluð! 🙂

  143. Thordis Filipsdottir 10. mars 2011 · á Facebook

    Hver les sorann?....við hvert klick, hvert kaup á blaði, þá svarar þú eftirspurn sem markaðurinn tekur mið að...its all about the money.....Byrjum á að breyta okkur og því sem við gefum gaum að.....Flott grein hjá þér Sigurður Hólm hún er vakning!

  144. Hans Guðmundsson 10. mars 2011 · á Facebook

    Svona er íslenska þjóðarsálin. Glæpahundar eiga virðingu almennings, fara jafnvel beint úr fangelsi inn á þing (Árni í Vestmannaeyjum). Og afhverju komst hann aftur á þing? Jú, hann var kosinn inn á þing! Hverjir kusu hann? Sömu vitleysingarnir og dýrka glæpamennina auðvitað.

    Infó: Það er fínt að vera drullusokkur á Íslandi, enda getur maður ekki farið út í búð og keypt sér karmellu án þess að vera tekinn í ra... görnina.

  145. Guðrún Guðmundsdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Er lenskan ekki sú, að bitastæð frétt er sú sem hefur frá skandölum og svíneríum að státa? Hörmungum og öðru sem aflaga fer. Landinn talinn svo aumur, að þessi fréttamennska sé sú sem best gangi í hann. Neytendur verða að taka saman höndum, því að þeir eru frjói jarðvegurinn fyrir fréttaflutning af þessu tagi. Biðjum um meiri umjfallanir af hetjunum okkar og því góða sem er að gerast allt í kring um okkur. Þar er ekki síður af nógu að taka, og þar liggja fréttirnar sem eru þess virði að segja frá

  146. Margret Olafs 10. mars 2011 · á Facebook

    Mikið er ég sammála, TAKK FYRIR.

  147. Heiða Sigrún Andrésdóttir 10. mars 2011 · á Facebook

    Jamm ég er svoooo sammála!

  148. Logi Mar Einarsson 11. mars 2011 · á Facebook

    Orð í tíma töluð.

  149. Andrés Kolbeinsson 11. mars 2011 · á Facebook

    Þú ert ekkert annað en móðursjúkur, siðlaus og fullur af andlegu ofbeldi og vona að þú passir þig, bara þín vegna! Vertu ekki að dæma fólk sem þú þekkir ekki eða þykist þekkja. Það er aldrei gott að rakka fólk niður fyrir framan alþjóð aða bara að tala um fólk til að upphefja sínar skoðanir. Gerðu eitt fyrir sjálfan þig, rúnkaðu þér yfir öllu LIKE fb dæminu þínu og reindu að vera stoltur, ert öruglega syndlausasti hálfiti allra tíma.
    Guð veri með þér.

  150. Palina Rosinkranz Theodorsdottir 11. mars 2011 · á Facebook

    ég velti því nú fyrir mér hversskonar samband er á milli blaðamannsins og þessa fanga, kannski er hann kúnni hjá þeim,,, humm hver veit. Íslenskir fréttamenn margir hverjir hafa komist upp með lélega fréttamensku hérna á þessu landi og það furðulegasta er að fólk gleypir við þessari vitleysu.

  151. Björg Jónsdóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    Algjörlega sammála

  152. Soffía Anna Helga 11. mars 2011 · á Facebook

    hah vá já maður hefur stundum pælt í því, flott grein hjá þér 🙂

  153. Margrét Steinunn Bragadóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    Vel mælt .

  154. Áslaug Ragnars 11. mars 2011 · á Facebook

    Mikið var að einhver lét í sér heyra um þessi ósköp.

  155. Hera Toutai 11. mars 2011 · á Facebook

    Mig langar að heyra meira um það fólk sem hjálpar öðrum og eru ekkert að básúna það út um allt.

  156. Sigríður Júlíusdóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    heyr heyr

  157. Elin Þorvarðardóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    Það eru alveg sama hvað er sagt um Bitru þá er þetta fangelsi og þú finnur það þegar þú ert þar. Þar erum menn sem hafa sannað sig upp á litla hrauni með breytri hegðun og fá viss fríðindi fyri það. Ég er alveg sammála því að það á ekki að upphefja glæpamenn í fjölmiðlum en að kalla þá sem hafa lent vitlausu meginn við teinana hálvita og aumingja segir mikið meira um þennan mann en nokkurn tíman þá sem hann talar um.

  158. Kjartan Magnússon 11. mars 2011 · á Facebook

    Frábær grein. Margir þessara manna eru með litla greind og minnimáttarkennd þeirra fær útrás með hegðun í klúbbum af þessu tagi. Mest eru þetta líklega einstaklingar, sem hlægja má að, ef þeir vegna vanmáttarkenndar sinnar velja sér sér stað meðal aumingja.

  159. Guðmundur Ingi Pétursson 11. mars 2011 · á Facebook

    Flott grein. Fréttamenn eiga að sniðganga alfarið allt sem getur talið fréttnæmt um þessa menn Minnimáttarkennd þeirra og egó er svo brenglað að þeir þrífast á fjölmiðlaumfjöllun. þess vegna segi ég . ekki fjalla um þá. Svo þessi stelpugrey sem eru að þvælast með þessum mönnum, ja, eiga þær bara nokkuð betra skilið. (Flestar.)

  160. Elinborg Skulad 11. mars 2011 · á Facebook

    Ég er svo algjörlega sammála, þær fréttir sem eru að birtast um þessi skítseyði sem svo virðist sem allir séu hræddir við, eru bara vitni um útúrlélega mentun í fréttaflutningi á íslenskum fréttamiðlum, mér er spurn? hver er skólastjóri í blaðamannaskóla íslands? er það kannski Valdimar Olson eða Herr Schmits, eða Jón Ragnarson, ef einhver veit ekki hverjir þeir eru, þá skal það upplýst hér að þeir sluppu með morð og yfirhylmingu, hér áður fyrr var hægt að treysta á lögregluna, enn það er ekki hægt í dag, sama hvaða vitneskju þeir hafa, þá er þeim fyrirmunað að taka á glæpamönnum einsog þeirra vinna boðar þeim að gera, það þarf alltaf að fá samþykki "að ofan", og hvað er það sem er ofar, jú það eru "blækurnar" sem vakta ;; velgerðarmenn pólitísuanna!!! Ísland er eitt augljósasta dæmið um siðferðistspilltasta landið í dag. Það sorglegasta við þetta allt er að almenningur hagar sér einsog giðingarnir sem voru smalaðir í stóreldhús Hitlers, og það sem verra er;; þau vita af því, og gera e…

  161. Palli Banine 11. mars 2011 · á Facebook

    flott skrif, thad myndi engin lesa thessar fréttir ef ad thaer vaeru ekki birtar, einfalt.

  162. Þórhallur Einisson 11. mars 2011 · á Facebook

    Því miður er þetta partur af þeirri lágmenningu sem virðist þrífast hjá allt of stórum hluta þjóðarinnar 🙁

  163. Helgi Og Disa 11. mars 2011 · á Facebook

    Vel skrifuð grein eg er svo sammala

  164. María Rut Hinriksdóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    Já ekki hef ég lesið DV og þá sjaldan sem ég les Pressuna er það grínefni en ekki efni sem ég býst við að færi mér einhverjar fréttir. Eins mikið og ég er saklaus af þessum heimi og vil ekkert með hann eða þeim sem honum tilheyra gera eða svo mikið sem vita um þá þekki ég t.d. þessa menn sem er minnst á í greininni í sjón. Þessu brenglaðsta er troðið alls staðar að og hvort sem maður leitar að fréttum eða afþreyingarefni þá vill það svo til að maður rekst alltaf á eitthvað af þessum endanum. Hrottaskapur, níð, lögbrot sem varða nánast hvað sem er og þetta er alltaf efst á fréttalistum! Þar sem ég er ein af þeim mörgu sem lesa fréttir á netinu þá sniðgeng ég þessar fréttir hiklaust ef ég veit við hvað er átt í fyrirsögninni. En allt of margir kvarta yfir þessu og kveina og eru síðan hluti af einum stæsta áhorfenda hópi, horfa upp á þessa sorglegu þróun að þessir ónytjungar sitja efst á listum fréttanna og fylgjast með, meðvirkir þannig að þessum fréttum er haldið á lofti.. af því þær e…

  165. Sirrý Arnardóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    Sammála!

  166. Katrín Tinna Hafsteinsdóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    vá hvað eg vildi óska þess aðég gæti like-að þennan pistil miljón sinnum !!

  167. Páll Pálsson 11. mars 2011 · á Facebook

    jon er vist stor vel yfir 2medra og toluvert massadur sinist manni af myndum ,,, kanski ætti ad kalla hann nonna langa ,,,

  168. Hjörtur Árnason 11. mars 2011 · á Facebook

    Amen.

  169. Árni Valdemarsson 11. mars 2011 · á Facebook

    Fjölmiðlafólk er sjálfsagt undir ógn eins og aðrir. Stofnun sérstakrar lögreglusveita til að fást við ógnina hlýtur að koma til álita! Ætli mér sé óhætt að nefna þetta?

  170. Asdis Gunnarsdóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    ég er sammála þessari grein, þeim er ekki gerður meiri greiði en að fjalla um þá í blöðum, tímaritum, sjónvarpi og útvarpi, þessir siðblindingjar nærast á athygli, það á helst að láta sem þeir séu ekki til. bara ónefndur maður gerði eða framdi........

  171. Rakel Sigurgeirsdóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    ... og ég sem hélt að ég væri sú eina sem væri að reyna að vekja athygli á þessari tegund hálfvitavæðingarinnar. Mikið er ég hamingjusöm yfir því að sjá að það er langur vegur frá því:-)

  172. Einar Valur Bjarnason Maack 11. mars 2011 · á Facebook

    Þessi tilhneyging fréttamiðla minnir mig oftar en ekki á brot úr texta pönksveitarinnar NOFX "The idiots are taking over"; "There's no point in democracy when ignorance is celebrated". Þessi grein er sönn og það er sorglegt.

  173. Kristján Friðgeirsson 11. mars 2011 · á Facebook

    Þetta eru orð í tíma töluð. Ég er mjög sammála greinarhöfundi.

  174. The Thing with the Stuff 11. mars 2011 · á Facebook

    .

  175. Jing Ping 11. mars 2011 · á Facebook

    test

  176. Nathan Fan 11. mars 2011 · á Facebook

    a

  177. Júlía Valsdóttir 11. mars 2011 · á Facebook

    Bitra var kvennafangelsi fyrir konur svo heimili fyrir fatlađa og svo gistiheimili

  178. sonías 21. mars 2011

    ég sá nú reyndar Jón stóra í 10-11 um daginn. bara svo að það sé á hreinu, þá er hann mjög hávaxinn maður.
    annarss er ég sammála þér að öllu leyti nema þetta hells angels dót, ég trúi því ekki að þeir stundi skipulagða glæpastarfsemi per se... en rotin epli virðast tíð í þeim tiltekna sekk.

  179. þú ert rugl 16. september 2011

    Þetta með fangana, hvað meinaru sveitasæla þeir fá ekki að hitta ættingja og taka þátt í samfélaginu, og með því að reyna að veita þeim menntun og tækifæri er til þess að koma í veg fyrir að þeir endurtaki mistök sín aftur þegar þeir losna út.

  180. Rannti 17. september 2011

    Þessar fyrirmyndir sem fjölmiðlar eru að búa til úr þessu hyski er til háborinnar skammar. Að upphefja það versta í samfélaginu á eftir og hefur haft slæm áhrif á það. Ef samfélagið tekur á þessu þá á eftir að taka töluverðann tíma að laga þann skaða sem þegar hefur verið gerður.Því er mikilvægt að byrja sem fyrst að snúa þessari þróun við. Þeim mun lengur sem þetta fær að viðgangast þeim mun lengur tekur að laga það.
     
    Fólkið sem samfélagið samanstendur af þarf líka hvert og eitt að líta í sinn eiginn barm og hætta að skoða þessar greinar og hvað þá að vera að dreifa þeim út um allt þó það sé til að hneykslast. Því meiri dreifing sem þessar sorp greinar fá þeim mun fleirri greinar fáum við tilbaka því eins og markaðsfræðingar myndu segja "þetta selur". Því er mikilvægt að sleppa að skoða þessar greinar til að byrja með. Sama hversu freistandi er að lesa hversu heimskir ákveðnir aðilar eru eða hvaða vitleysu hinn og þessi tuddi voru að gera núna.
     
    Ástæðan fyrir þessum endalausum greinum er að fólk er að lesa þetta. Það skiptir engu máli hvort það lesi þetta og hneykslist þeir eru þegar búnir að gefa greininni net-traffík og með því að dreifa henni á fleirri eru þeir að gefa meiri traffík.
     
    Ef þið viljið dreifa til fleirri aðila greinum um fólk og þeirra afrek hvernig væri þá að dreifa frekar greinum um fólk sem þið teljið gera samfélaginu gott. T.d. afreks fólks í listum, íþróttum, vísindum og svo framvegis en þó einnig af fólki sem hefur bætt ráð sitt og tekið sig á í lífinu. Fólk sem gerir samfélaginu gott og fólk sem þið viljið sjá samfélag ykkar samanstanda af.
     
    Munið það að þegar þið skoðið/dreifið greinum/fréttum þá eruð þið að greiða ykkar atkvæði um hvað þið viljið sjá (og að aðrir sjái) í framtíðinni á viðkomandi miðli.
     

  181. Me 17. september 2011

    Finnst nú skipta máli hver glæpurinn er hvort þú eigir skilið að fara á Kvigjabryggju eða Bitru, Og það að hitta ekki fjættingja, jú það er heimsókn, og if u cant do the time dont do the crime 😉

  182. Sigurður Hólm Gunnarsson 17. september 2011

    Takk fyrir viðbrögðin. Ég hvet fólk til að skrifa undir nafni. Sérstaklega ef það er með sterkar "skoðanir" á mönnum og málefnum. 

  183. Nafnlaus 15. maí 2012

    Búúúú
    Algjörlega ósammála...  alla týð hafa sögur verið sagðar af þeim sem stinga sig út á einn eða annan hátt.  frettamenn eru á fullu í því líka að segja frá þeim sem standa uppúr í virðulegum greinum (hversu stór partur af hverju blaði er undir sport og listir?)  - að útiloka sorann er ekkert nema snobb
    Alla týð hafa menn laðast af ferns-konar fréttum; dramatískum, tragedískum, húmor, og farsa
    Fréttir af Jóni Stóra innihalda oftar en ekki efni sem fellur undir allt þetta:  ergo:  prýðilegt fréttaefni - og við þurfum ekki einhverja menntasnobbaða amateur-uppeldisfræðinga til að segja okkur að hegðun þessa fólks sé óæskileg (né kaupi ég þá kenningu að það sem vekur áhuga samfélagsins, geri samfélagið ósalfrátt að samskonar kvikyndi)
    þannig Að BÚÚÚÚÚ

  184. sara 15. maí 2012

    jón stóri er reyndar alveg helvíti stór. vel yfir tveir metrar! hélt alltaf að hann væri bara kallaður jón stóri því hann er massaður eða eitthvað, en svo er hann bara drullu hávaxinn

     annars snilldar grein, alveg sammála! 

  185. Dagný 15. maí 2012

    Ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig ég geti komið á framfæri óbeit minni á þessum "poppstjörnufréttum" af glæpalýð og vægast sagt vafasömum karakterum, því ekki get ég hugsað mér að opna fréttina til að kommenta þar og ef maður hringir og kvartar fær maður bara þau svör að þetta sé vinsælt og mikið lesið.

  186. Vilhelm 15. maí 2012

    Nokkrar athugasemdir og spurningar:
    1. Af hverju ertu með mynd af ungri stelpu með glóðarauga við pistil sem inniheldur gagnrýni á fréttaflutning fjölmiðla?
    2. Ert þú í aðstöðu til að geta greint alla liðsmenn HA sem "siðlausa", sem er alvarlegur geðsjúkdómur? Eða ert þú að varpa þínum eigin gildum (eins og að fíkniefnasala sé siðlaus (NB þá hljóta allir starfsmenn ÁTVR að vera siðlausir)) yfir á fólk sem hefur einfaldlega komist að annarri niðurstöðu. Og svo það sé á hreinu þá er ég ekki að verja ofbeldisverk, né þá sem hafa gerst sekir um slíkt. Bara að velta fyrir mér hvernig þú kemst að þessari niðurstöðu, sem mér þykir anga af sleggjudómum og fyrirlitningu frekar en upplýstri niðurstöðu.
    3. Ég stórefa það að Annþór Karlsson eða Guðmundur í Byrginu séu á leiðinni í heimsókn á Bessastaði, allra síst til að taka við orðu úr höndum forsetans. Þú hefur líklega bætt því við "for dramatic effect" þar sem það er ekki nógu krassandi að ýja að því að frelsissvipting til margra ára, að vera sviptur sjálfræði og neyddur til að búa langt heiman frá sér, í burtu frá ástvinum, í samneiti við fólk sem sumt hvert er nærumhverfi sínu bókstaflega hættulegt og ætti frekar heima á geðdeild, sé bara einhver lautarferð. Aðeins fólk sem ekki getur sett sig í spor ógæfusamari samborgara getur fullyrt svona út í bláinn.
     
    Ég er samt sammála þér með þennan fréttaflutning. Hann er fáránlegur.

  187. Anna María 15. maí 2012

    Er þetta ekki bara spurningin um hvernig er sagt frá hlutunum?  Það er ekkert að því að skrifa fréttir af allskonar hlutum.  Fínt að halda fólki vel upplýstu um stöðu annarra í samfélaginu.  Málð snýst hins vegar um hvort við eigum að hefja fólk upp tiil skýjanna fyrir að vera höfuðpaurar eða þátttakendur í einhverju því heimskulegasta og vitlausa sem um getur.  Það er engin ástæða til að tala beinlínis niður til fólks en það á að tala niður gerðir svona fólks og láta aldrei hjá líða að geta þess hversu svakalegur dómgreindarbrestur það er þegar fólk hagar sér á þann hátt sem þetta lið gerir.    Að traðka niður aðra, að beita aðra slíku ofbeldi er viðbjóður sem má aldrei falla í skuggann fyrir því að hugsanlega eigi ofbeldismaðurinn sér einhverja góða hlið.  Engum er alls varnað en að nota frægð fólks fyrir viðbjóð að einhverju sem kallar á að það sé hafið til skýjanna í fjölmiðlum er bara fráleitt.

  188. Guðrún Ægisdóttir 17. maí 2012

    Hárrétt, Elías. Engin munur á frægd og því, að vera alræmdur.  Bullur, ofbeldisnenn og sýkopatar eru umtalaðir, og það nægir.  Hér þarf að fara fram stíft enduruppeldi þeirra sem yfirleitt skrifa í blöð.

  189. Elin Bjorns.. 10. júní 2012

    Sammála !! (Ekki fáranlegu commentunum en blogginu sjálfu :))

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Fjölmiðlar og opinber umræða

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.