Í síðustu viku setti ég lítinn pistil hingað inn á Skoðun.is. Þessi pistill vakti meiri athygli heldur en ég átti von á. Ég vissi sem var, að hlutskipti foreldra sem byggju ekki saman væri misskipt. En að það væri meðal annars vegna ,,tæknilegra“ ástæðna sem ég er ekki skráður faðir dóttur minnar í opinberum gögnum datt mér ekki í hug.
Computer says no
Í fréttablaðinu í gær er rætt við Guðmund Steingrímsson sem eins og segir í fyrri pistli mínum um þessi málefni, lagði fram þingsályktunartillögu og í raun tvær tillögur er varðar þetta mál. Önnur tillagan fjallar um að innanríkisráðherra skuli stofna starfshóp sem á að semja frumvarp um annað hvort tvöfalt lögheimili eða búa til nýtt lagalegt hugtak um jafna búsetu. Hin tillagan fjallar um breytingar á skráningarkerfi hins opinbera þannig að báðir umgengisforeldrar verði skráðir sem foreldrar
Segir Guðmundur réttilega í þessu viðtali
„Það skekkir mjög alla pólitík gagnvart fjölskyldum og börnum að það eru bara lögheimilisforeldrar sem eru skráðir foreldrar barna en ekki umgengnisforeldrar. Stórir hópar fólks sem hafa börnin sín lungann úr árinu eru bara ekki skráðir foreldrar þeirra og njóta þá ekki stuðnings sem slíkir. Þetta er arfur frá gömlum tíma, gamaldags kynjapólitík.“
En ég hélt eftir að ég byrjaði að kynna mér málin, að ég gæti ekki orðið pirraðri en þegar ég var að vafra á þjóðskrá og komst að því að dóttir mín væri ekki skráð sem hluti af minni fjölskyldu. Því miður var það ekki rétt hjá mér, ég varð enn pirraðari þegar ég sá í fréttablaðinu ástæðuna sem þjóðskrá gefur í umsögn um tillögu Guðmundar um tvöfalt lögheimili.
„Af tæknilegum ástæðum er ekki mögulegt að bæta við skráningarsvæðum í þjóðskrá en slíkt væri nauðsynlegt ef ákveðið yrði að heimila börnum að hafa tvö lögheimili eða ef þess yrði krafist að einhverskonar jafnt búsetuform barna yrði sýnilegt með ákveðnum hætti í þjóðskrá,“
Semsagt eina ástæðan fyrir því að dóttir mín er ekki skráð sem hluti af minni fjölskyldu og ég þar með ekki lengur faðir í opinberum gögnum er sú að computer says no.
Skoða 5 athugasemdirFela athugasemdir
Íslendingar geta búið til netleik þar sem þúsundir manna svífa um á geimskipum og eiga viðskipti sín á milli með sýndarkrónum í sýndarveruleika, en geta ekki búið til þjóðskrá þar sem hægt er að skrá báða umgengnisforeldra sem foreldra. Eitthvað segir mér þó að þarna sé ekki um skort á getu að ræða heldur frekar skort á vilja og fjármagni.
Er ekki sama ástæða gefin upp ef dóttir þín héti Guðríður Sigubjörg Helga Matthíasardóttir, af tæknilegum ástæðum máttu ekki heita meira en 13-15 stafir ( að mig minnir )
Þjóðskrá takmarkast við 31 staf í fullt nafn. Það kostar nokkurn pening að bæta úr því. Ég tel hins vegar að þrátt fyrir forneskju grunn þjóðskrár þá sé þar pláss fyrir nýja dálka fyrir kennitölur foreldra og annað lögheimili. Það kostar sáralítið ef ég er að fara með rétt mál. Vonandi svarar þjóðskrá fyrirspurn minni um það efni.
Þetta er auðvitað ekki í lagi !! haha..
31 bókstafa takmörkunin er alveg til háborinnar skammar. Það er boðið upp á það að fólk haldi lengri nöfnum, en þau fái ekki opinber skilríki sem sýni allt nafnið.
Börnin mín 2 heita:
Hjara Ljúfvina Hálf Hraunfjörð Botton
og
Hjörr Konungur Alheims Hraunfjörð BottonHér fylgir svar sem ég fékk frá þjóðskránni:
==========================
þar sem einungis er hægt að birta 31 stafbil í tölvukerfum Þjóðskrár Íslands þá þarf að stytta nöfnin til að unnt sé að skrá þau í þjóðskrárkerfið. Ekki er verið að stytta né breyta nöfnunum heldur einungis birtingarmynd þeirra í tölvukerfinu. Samkvæmt reglugerð um styttingu nafna í þjóðskrá (http://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx...) er óheimilt að sytta fyrsta eiginnafn og síðara kenninafn.Í nafni dóttur þinnar þarf þannig að stytta eitthvert þessara nafna „Ljúfvina Hálf Hraunfjörð“ Ekki nægir að stytta einungis nafnið „Hálf“ en það dugar að stytta annað hvort nafnið „Ljúfvina“ eða „Hraunfjörð“. Þannig gæti nafn hennar t.d. verið ritað Hja…



