Hoppa í efni

Aðförin að einkabílnum og annað millistéttarvæl

Sigurður Hólm Gunnarsson | 20.05.2014

Framsókn og flugvallarvinirNú hef ég undanfarin ár búið bæði í miðbænum og í Grafarvogi. Alltaf á bíl, enda vinnan nokkuð langt frá heimili mínu. Ekki hef ég tekið eftir neinni „aðför“ að einkabílnum eða að mér persónulega sem ökumanni. Ég hef reyndar tekið eftir fleiri hjólastígum, að það tekur stundum fimm mínútur að finna bílastæði og í einu þekktu dæmi fannst mér menn missa sig í einhverri lita- og listagleði við gerð hjólastíga. Þetta hræðilega ástand getur þó varla kallast „aðför“ að einkabílnum. Hvað næst? Er kannski verið að leggja ökumenn í EINELTI?

Orðræðan um meint átök hjólandi og keyrandi vegfarenda er að mestu leyti kjánaleg. Aðallega skil ég ekki hvernig fólk getur gert þetta mál að einhverju aðalatriði í kosningabaráttu. Það er dæmalaust efri-millistéttarvæl rétt eins og heit umræða um flugvöllinn (sem er ekki að fara neitt á næsta kjörtímabili), grasslátt og hreinar götur.  Ef málefni barna, barnafólks, leigjenda, húsnæðislausra og tekjulágra fengi meira rými í baráttunni um borgina væri ég sáttari. Málið er að heill flokkur hefur verið stofnaður til að vernda flugvöllinn og annar flokkur talar mest um grasslátt, skattalækkanir og nú síðast frjálsan opnunartíma skemmtistaða. Allt mál sem skipta einhverju máli. En í alvöru talað. Sérstök áhersla á þessi mál er ekkert annað en millistéttarvæl.

Skoða 4 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Björgvin Þór Þórhallsson 20. maí 2014 · á Facebook

    Já! Orð í tíma töluð!

  2. Jon Kristinn Dagsson 20. maí 2014 · á Facebook

    Algjörlega sammála

  3. Árni Viðar Björgvinsson 20. maí 2014 · á Facebook

    Því miður er "millistéttarvæl" einmitt þorri allrar pólitískrar umræðu á Íslandi í dag. Hvernig væri að bakka aðeins úr "ég" hugarfarinu og fara örlítið meira að hugsa um "okkur". Er það virkilega svo skelfilega hættulegt að voga sér að hugsa um fleiri en sjálfan sig í þessu lífi?

  4. Sigurður Ingi Jónsson 20. maí 2014 · á Facebook

    Ég verð að gauka inn orði um flugvöllinn hér því það er óumdeilt að á næsta kjörtímabili, verði núverandi meirihluti enn við völd, þá verður grasrót flugs úthýst af Reykjavíkurflugvelli strax á næsta ári. Þar með verða um 600 einstaklingar í flugtengdu námi á vergangi, auk flugklúbba sem þeir eru félagar í og þjónustuaðila, alls talið um 800 einstaklingar. Ekki verður í nein hús að venda fyrir um 80 flugvélar og búið að lýsa því yfir af Degi B. Eggertssyni og Birni Blöndal að útburðurinn verði hagsmunaaðilum að bótalausu. Það er rétt að halda þessu til haga þegar fjallað er um mál tengd Reykjavíkurflugvelli.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Stjórnmál og lýðræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.