Hoppa í efni

Að alast upp sem auka barn

Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir | 25.07.2013

Síðustu daga og mánuði hafa réttindi foreldra sem fara með sameiginlega forsjá mikið verið rædd. Ég fagna þeirri umræðu mjög. Þar stíga fram foreldrar sem berjast fyrir því að fá frekari réttindi hvað varðar uppeldi og ábyrgð barna sinna. Slík umræða þykir mér vera vísbending um að foreldrar vilji hafa jöfn tækifæri á að taka þátt í lífi sinna barna.

Ég gleðst yfir slíkri umræðu vegna þess að hún var ekki upp á pallborðinu þegar ég og jafnaldrar mínir vorum lítil börn. Þá voru umgengismál barna nánast undantekningarlaust með því formi að móðir hafði fulla forsjá barns og faðir naut aðeins umgengni aðra hvora helgi. Ég veit að þess konar umgengisform er ekki að öllu horfið úr þjóðfélaginu en það virðist vera á undanhaldi.

Þegar ég var lítil stelpa áttu flest skilnaðarbörn bara heima hjá mæðrum sínum. Sum fóru þó til föður síns aðra hvora helgi. Sum fóru bara stundum til föður síns eftir hentugleika. Yfirleitt var það þannig að feðurnir eignuðust svo konur og stofnuðu með þeim fjölskyldu með nýjum börnum. Þá eignuðust jafnaldrar mínir, skilnaðarbörnin, hálfsystkini. Það var auðvitað alltaf gaman að eignast lítið systkini. 

En þá fóru aðstæður að breytast. Faðirinn, nýja konan og nýja hálfsystkinið urðu að kjarnafjölskyldu. Oft passaði það ekki vel inn í fjölskyldumyndina að fá eitt auka stjúpbarn um helgar. Skilnaðarbarnið varð að „auka“ barni.  Auka barnið fékk þó auðvitað að koma, umgengnin var jú bundin við samning og auðvitað þótti föðurnum vænt um barnið sitt.  Í sumum tilfellum fékk  auka barnið það á tilfinninguna að það væri að þvælast fyrir. Stjúpmóðirin var upptekin af nýju hálfsystkinum (eins og gefur að skilja) og hafði ef til vill ekki tíma til að rækta samband sitt við stjúpbarnið. Barnið úr gömlu fjölskyldunni. Einn vinur minn varð auka barn og fékk bara að fljóta með í nýju fjölskyldunni.

Mig langar að koma sögu hans á framfæri þar sem hún lýsir veruleika svo margra barna.

Þessi vinur minn hélt samt áfram að fara til nýju fjölskyldu föður síns þrátt fyrir nýjar aðstæður hennar. Nýja fjölskyldan átti sínar hefðir og venjur eins og gengur og gerist en hann fékk ekki að taka þátt í þeim. Hann átti ekki sitt glas eins og hálfsystkini sín og hann átti ekki heldur sitt sæti við borðið eins og allir hinir eða sinn stað til að sofa á. Hann svaf bara í sófanum eða á dýnu einhverstaðar. Honum var ekkert endilega boðið þegar einhver átti afmæli. Hann átti ekkert tilkall til heimilis fjölskyldunnar, átti hvorki leikfang, tannbursta, náttföt eða neitt sem hann gat kallað sitt. Hann þvældist með allt það dót sem hann þurfti með sér fram og til baka.

Það sem vini mínum fannst samt verst var að enginn í nýju fjölskyldunni lagði sig fram við að kynnast honum eða sýndi honum sérstakan áhuga. Hann fékk bara að vera þarna. Hann fékk eiginlega aldrei að gera neitt einn með föður sínum og aldrei sýndi stjúpmóðir hans að hún vildi kynnast honum betur og rækta sín tengsl við hann. Honum leið eins og hann væri annars flokks. Það hlyti að vera eitthvað að honum fyrst að föður hans og stjúpmóður þótti meira til hálfsystkina hans koma. Hann hlyti að vera eitthvað gallaður, ekki nógu klár, ekki nógu skemmtilegur, ekki nógu góður o.s.frv.

Og þannig ólst hann upp, hann ólst upp með þá vissu að það hlyti eitthvað að vera að honum. Því faðir hans var mjög gott foreldri hinna barna sinna. Svo það hlyti eitthvað að vera að honum sjálfum fyrst hann var ekki tekinn inn í fjölskylduna. Vinur minn þessi átti reyndar frábæra móður og móðurfjölskyldu. Með þeim leið honum vel. En hann upplifði alltaf höfnun þegar hann kom til föður síns.

Svona hélt þetta áfram þangað til að vinur minn var orðinn fullorðinn. Alltaf var þessi tilfinning innra með honum að hann væri einfaldlega ekki nógu góður. Faðirinn og fjölskyldan hans virtust heldur ekki vera neitt sérstaklega stolt af því sem hann tók sér fyrir hendur eða af því hvernig manneskja hann var. Stundum komu upp atburðir sem vini mínum fannst mjög erfitt að takast á við. Til dæmis þegar faðirinn og fjölskyldan fóru reglulega í fjölskyldumyndatökur. Jafnvel sýndu honum myndirnar í næstu heimsókn og spurðu hvort honum þætti myndirnar ekki góðar, ljósmyndarinn hafði verið svo frábær. Enginn virtist taka eftir því að það vantaði einhvern inn á fjölskyldumyndina. Enginn nema vinur minn.

Saga þessi er sönn, henni hefur lítillega verið breytt til að afmá persónumerki en allar staðreyndirnar eru réttar. Vissulega eru margar hliðar á hverri sögu. En þessi hlið er saga barnsins og upplifun þess á æsku sinni og uppvexti.

Með þessari sögu vil ég biðja þig foreldri gott um að passa að börnin þín verði ekki „auka börn“ þó þú búir ekki lengur með þeim. Ekki heldur ef þau eru „bara“ stjúpbörnin þín. Passaðu þig alltaf að mynda þín einkatengsl við þau börn sem þú „átt“ og og berð ábyrgð á. Í  stjúpfjölskyldum er það mikilvægt að stjúpforeldri myndi og byggi upp tengsl á milli sín og stjúpbarna. Ekki taka barninu þínu sem sjálfgefnu. Ef það kemur bara aðra hvora helgi leyfðu því þá að finna að það eigi líka heimili hjá þér. Fagnaðu komu þess. Láttu það vita hvað það er gott að fá það. Passaðu að barnið eigi sér sinn stað á heimilinu. Helst herbergi, ef ekki þá allavega fastan stað til að sofa á, leikföng sem það á sjálft. Búðu til venjur með barninu þínu sem þið kannski bara eigi tvö saman. Láttu því finnast það verðskuldað, mikilvægt og að það hafi sitt að leggja í að gera fjölskylduna betri. Umfram allt láttu því finnast það vera hluti af fjölskyldunni og að það eigi jafn mikinn sess og aðrir fjölskyldumeðlimir.

 

Skoða 28 athugasemdirFela athugasemdir
  1. BjarnÞóra María Pálsdóttir 25. júlí 2013 · á Facebook

    Svo er það hin hliðin þar sem mamman leyfir barninu ekki að njóta þess að tilheyra nýju fjölskyldunni. Þegar allt kapp er lagt á að eyðileggja alla möguleika á að það fái að taka þátt í viðburðum föðurmegin. Allt sem er í gangi hjá nýju stjúpfjölskyldunni er gert ljótt og óþarft af því að það er alltaf svo miklu meira merkilegt að gerast hjá mömmu. Þessi mál eru ljót og taka mikinn toll af fólki sem eiga í þessari baráttu.

  2. Margrét Björns 25. júlí 2013 · á Facebook

    Frábær grein hjá Ragnheiði! Eigandi sjálf barn úr fyrra sambandi og 2 stjúpsyni í núverandi sambandi finnst mér mikilvægt að börn fái að upplifa allan þann tíma sem mögulegt er að veita þeim með báðum foreldrum.
    Ég get ekki hugsað til þess að barnið mitt og faðir hans fái ekki notið hvors annars jafnt á við þann tíma sem ég á með syni mínum. Þ.a.l. kom ekki annað til greina en viku-og-viku fyrirkomulag sem hefur reynst okkur og syni okkar mjög vel. Ég er svo á móti "helgarpabba" fyrirkomulaginu, enda hefur það sýnt tig að það geti haft slæm áhrif á bæði föðurinn og börnin til langs tíma litið.
    Þótt foreldrar slíti samvistum á það ekki að hafa áhrif á samband barnanna við foreldra sína, hvað þá þegar verið er að nota börnin gegn öðru foreldranna í deilum. Börn eru einstaklingar sem stóla á foreldra sína til að hugsa um hag þeirra og við berum ábyrgð á lífi þeirra og líðan.

  3. Elísa Rut 25. júlí 2013 · á Facebook

    það nefnilega skiptir máli að skipta máli... :/

  4. Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir 25. júlí 2013 · á Facebook

    ágæt lesning og allt það en ég held að það verði að taka inní myndina að ekki hafa allir þá aðstöður til þess að veita barni sínu sem kemur í helgarheimsóknir sitt eigið rúm eða neitt svoleiðis. ég var ekkert verri barn þótt að ég hefði ekki mitt eigið "svæði" þegar að ég fór í mömmuhelgar og veit það vel að sonur minn finnur ekki fyrir neinum áhrifum þess að eiga ekki sitt þegar hann er í pabbahelgum. Börn þurfa bara að finna að þau eru elskuð 🙂 Það er nóg fyrir þau 🙂

  5. Sigurgyða Þrastardóttir 25. júlí 2013 · á Facebook

    Það eru til margar hliðar á þessum teningi og allar jafn marktækar, mér finnst bara sárt að þetta er allt ákvarðanir fullorðna fólksins og að börnin fái aldrei að njóta þeirra sjálfsögðu réttinda að fá að njóta þess að vera elskuð af öllum meðlimum fjölskyldunnar sinnar jafnt og þó að það sér hin vikan að þá megi barnið finna að það hafi rétt til að eiga óheftan aðgang að þeim sem það sækir mest í og fái jafnframt að draga sig í hlé frá þeim sem láta þeim líða illa, þetta sjónarmið hefur ekki fengið mikla umræðu. Það er fullorðna fólkið sem stjórnar og ef barnið vill eitthvað annað en það sem fullorðna fólkið vill þá fær það ekki að njóta vafans.. mikið frekar hinn óþolandi fullorðni "forráðamaður" sem barninu stendur stuggur af.

  6. Asgerdur Rúnu Johannesdottir 25. júlí 2013 · á Facebook

    Takk fyrir þessa grein, við þurfum öll á því að halda að tilheyra og finna að við séum ekki "auka". Það skiptir máli að skipta máli,,,það er málið.

  7. Heiða Björk Sævarsdóttir 25. júlí 2013 · á Facebook

    amen

  8. Elisabet Ingileif Auðardóttir 25. júlí 2013 · á Facebook

    Virkilega þörf lesning og umræða.

  9. Davíð Guðmundsson 25. júlí 2013 · á Facebook

    Finnst þetta sorgleg grein sem ætti að vekja fólk til umhugsunar.. Börn eiga rétt á að upplifa 2 heimili ef foreldrar þess búa ekki saman... Mér finnst skemtilegt þegar dóttir mín segir ahh hvað það er gott að koma heim þegar hún kemur heim i pabbakot, vitandi að hún á annað heimili sem henni finnst jafn gott að koma heim til........

  10. Sigursteinn Ingvar Rúnarsson 25. júlí 2013 · á Facebook

    Þetta er mikilvægt. Skyldulesning.

  11. Guðrún Helgadóttir 25. júlí 2013 · á Facebook

    Takk!

  12. Hrefna Sigridur Reynisdottir 25. júlí 2013 · á Facebook

    Góð grein, ég vona að sem flestir lesi þetta.

  13. Maggý Magnúsdóttir 25. júlí 2013 · á Facebook

    Mjög góð grein. Það er gott að fá sanna sögu þar sem barnið segir satt og talar af hugrekki.

  14. Hafdís Vera Emilsdóttir 25. júlí 2013 · á Facebook

    Frábær grein!!

  15. Ása Rut Birgisdóttir 25. júlí 2013 · á Facebook

    Ofsalega góð grein og þvi miður ALLTOF ALGENGT.. Upplifði þetta sjalf sem barn..

  16. Hervör Alma Árnadóttir 26. júlí 2013 · á Facebook

    Takk fyrir þessa grein Ragnheiður Lára

  17. Hrafnhildur Blómkvist Baldursdóttir 26. júlí 2013 · á Facebook

    Svo er það líka helgarforeldrið sem stendur ekki uppí hárinu á nýja makanum sínum og eitrast af hugsunarhætti og framkvæmdum þeirra, byrja skylja barnið útundan afþví það er ekki velkomið að hálfu stjúpforeldrisins og barnið útilokað smám saman frá öllu sem tengist fjölskyldumatarboðum, gistingum, athygli og mörgu fl., í mínu tilfelli gekk það eitt skipti það langt að eftir að minn fyrverandi henti mér 19 ára gamallri út með 9 mánaða gamalt barn fékk ég húsaskjól hjá öðru foreldrinu mínu, þar sem ég átti ekkert heimili, enga búslóð eða neitt, þar til eitt gott kvöld tók "skrímslið" við og vildi losna við okkur til að geta notað herbergið í leikherbergi fyrir yngri systkinin mín og var þ.a.l. með 2ja daga fyrirvara til að finna mér nýtt heimili og fara þaðan út frá þeim með barnið mitt, foreldrið mitt tók bara undir þetta afþví stjúpforeldrið mitt sagði það og hendti dóttir sinni og barnabarni útá götu til að þóknast maka sínum, en við vorum svo tengd þegar ég var lítið, svo smátt og sm…

  18. Thora R. Kristjansdottir 26. júlí 2013 · á Facebook

    Frábær grein.
    Í minni fjölskyldu erum við auka börnin kölluð “Bónus börn”
    Vinkona mín hefur nokkrum sinnum nefnt við mig hversu heppinn ég er þegar það kemur að mínum tveimur fjölskyldum og ég geri mér alveg grein fyrir því 🙂
    Ég þekki því miður allt of marga sem að finnast þau ekki vera velkomin þegar þau fara til foreldra sinna, hvort sem það yfir helgi, í viku eða sumarfrí og ef það er ekki það sem er að angra barnið, þá er það vegna þess að það fær ekki leyfi frá mömmu eða pabba til að njóta þess að hafa haft það gott með hinu settinu og það endar með að barnið fær samviskubit fyrir að eiga góða stund með þeim.
    Af hverju geta þau ekki bara verið ánægð fyrir hönd barnsins? Ég heyri alltaf foreldra segja að það óski sér allt það besta fyrir barnið sitt, hamingju, ást og allt það, en er einhver klausa með ósýnilegu letri “Nema að það megi ekki hafa það of gott hjá hinni fjölskyldunni” telst það kannski ekki með?
    Ef það er eitthvað sem ég myndi benda á þá er það:
    1: Foreldrar og að…

  19. Ástríður Sig 26. júlí 2013 · á Facebook

    Svo má böl bæta að benda á eitthvað annað. Hér er ekki verið að tala um almenn samskiptavandamál heldur hvernig barn upplifir sig hjá pabba sínum.

  20. Alva Kristín Kristínardóttir 26. júlí 2013 · á Facebook

    Ein birtingarmynd vanrækslu sem mætti fara að gefa meiri gaum.

  21. Bjarkey Björnsdóttir 26. júlí 2013 · á Facebook

    Þetta er svo satt! Takk fyrir flotta grein. Því miður er það alltof algengt að börnum finnist þau "auka" eða hreinlega fyrir á hinu heimilinu.

  22. Rannveig Tenchi Ernudóttir 26. júlí 2013 · á Facebook

    Takk fyrir þennan pistil Ragnheiður Lára - þessi saga er allt of algeng og ég kannast við hana úr mínum vinahóp, margir sem upplifðu þetta einmitt.
    Þetta virðist samt hafa verið meira einkennandi fyrir einmitt börnin sem heimsóttu pabba, þegar nýja konan kom og svo börnin eftir það - mikið frekar en fyrir börnin sem fengu stjúppabba - það var a.m.k. mín reynsla og það var reynsla sem ég tók með mér þegar ég byrjaði með mínum manni fyrir 16 árum síðan, honum fylgdi stjúpbarn og ég hef aldrei getað litið hann öðrum augum en sem einum af barnahópnum, sá fyrsti í hópnum reyndar.
    Merkilegt nokk að um leið og ég kláraði að lesa pistilinn hringdi hann einmitt og bað mig um að sækja sig á skólaball - sem ég auðvitað gerði - hann hefur alltaf átt sinn stað í hjarta mínu og ég vona að hann hafi aldrei upplifað neitt annað 🙂

  23. Guðrún M Sigurðardóttir 26. júlí 2013 · á Facebook

    svakalega kannast ég við þessa sögu...á tvö börn sem lentu í þessu

  24. Laufey Andersen 26. júlí 2013 · á Facebook

    Svo er það sá vinkill að standa alltaf fyrir utan og hirfa inn í kjarna fjölskyldurnar.

  25. Ásdís Ósk Jónsdóttir 26. júlí 2013 · á Facebook

    Held ad tad sèu margar hlidar til á tessum málum èg veit tad sjálf sem stjúpmamma tveggja barna hef èg alltaf reynt ad gera allt til tess ad bőrnunum lidi vel hjá okkur og hef alltaf litid á tau sem hluta af okkar fjőlskyldu.

  26. Þórunn Friðriksdóttir 26. júlí 2013 · á Facebook

    held að þetta sé og hafi verið veruleiki æði margra, því miður, þetta að vera utangátta í nýrri fjölskyldu, jafnvel tveimur nýjum fjölskyldum, það er vondur baggi að bera út í lífið

  27. Bryndís Skúladóttir 26. júlí 2013 · á Facebook

    Orð ī tíma töluð...

  28. Hjalti W. Þorvaldsson 26. júlí 2013 · á Facebook

    Þessu gæti allt eins verið öfugt farið þar sem barnið verður hálf utanveltu hjá fráskildri móður sinni og hennar nánustu.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir

Allar greinar höfundar (9) →

Fleiri greinar sem tengjast: Börn og menntun

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.