Vinkona mín og fyrirmynd, Hope Knútsson, er búin að gefa út endurminningar sínar, „Von frá Brooklyn“.
Hope hefur haft gríðarlega góð áhrif á íslenskt samfélag og ég veit að við erum mörg sem erum þakklát fyrir það sem hún hefur lagt af mörkum. Hún er svokallaður innflytjandi en ef árin ráða er hún töluvert meiri Íslendingur en ég. Hún hefur búið hér og starfað lengur en ég hef verið á lífi.
Hope hefur líka skipt mig miklu máli. Hún hefur kennt mér margt og reynst mér sannur vinur. Ég er heppinn að eiga hana að.
Útgáfuhófið verður þriðjudaginn 24. nóvember kl. 16.30 í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39. Ég hvet ykkur öll til að mæta. Ég hlakka mikið til að lesa bókina, Hope. ❤️



