Sjö athugasemdir vegna umræðunnar um afskipti opinberra skóla af trúarlífi almennings.
1) Ísland er ekki kristin þjóð og þjóðkirkjan er ekki fyrir alla
Þjóð getur ekki haft trúarskoðun. Einstaklingar hafa ólíkar lífsskoðanir. Íslendingar eru ekki allir kristnir og það er algjörlega rangt að þjóðkirkjan sé fyrir alla.
(Sjá: Nei Brynjar Níelsson, Þjóðkirkjan er ekki fyrir alla!)
2) Kirkjuferðir ekki gömul hefð og hefðir réttlæta ekki óréttlæti
Kirkjuferðir úr leik- og grunnskólum um jól er ekki „gömul hefð“ eins og sífellt er fullyrt. Það eru örfá ár síðan þetta svokallaða samstarf kirkju og skóla varð almennt á Íslandi.
Þó að hefð væri fyrir kirkjuferðum og trúarinnrætingu í skólum þá myndi hefðin sem slík ekki réttlæta neitt. Hefðir gilda ekki sem rökstuðningur fyrir því hvort eitthvað sé rétt eða rangt.
Einu sinni var hefð fyrir því að konur væru alltaf heima að ala upp börn. Það var hefð fyrir því að aðeins karlar hefðu kosningarétt. Það var hefð fyrir þrælahaldi, hommahatri og fyrir því að grýta trúvillinga. Hefðarökin eru því ekki aðeins gagnslaus heldur beinlínis vond.
(Sjá: Skóli og trú)
3) Mannréttindi ≠ meirihlutavald
Margir virðast halda að skilgreiningin á mannréttindum sé sú að meirihlutinn ráði í öllum tilvikum. Þetta er augljóslega rangt. Kjarninn í allri mannréttindabaráttu og markmið með flestum stjórnarskrám er einmitt að tryggja réttindi einstaklinga gagnvart ríkisvaldinu og minnihlutann gagnvart ofríki og ofbeldi meirihlutans. Þannig er reynt að tryggja almenn mannréttindi í stjórnarskrám þannig að ekki sé hægt að traðka á öðru fólki í krafti meirihluta.
(Sjá: Lausnin er veraldlegt samfélag)
4) Það eru ekki mannréttindi að fá að fara í kirkju á vegum opinberra skóla
Ein algengast rökvillan sem maður heyrir er sú að það séu mannréttindi að fá að fara í skipulagðar kirkjuferðir á skólatíma á vegum opinberra skóla. Þetta er augljóst rugl. Það getur ekki talist vera mannréttindi að opinberir skólar sjái um trúarinnrætingu fyrir foreldra. Það tapar ekki nokkur maður á því að aðskilja skóla og kirkju. Það er ekki eins og það sé skortur á kirkjum og starfsmönnum hennar á Íslandi. Foreldrar sem vilja að börnin sín fái trúarlegt uppeldi hafa fullt frelsi til þess að fara með þau í kirkju.
(Sjá: Afnám forréttinda er ekki frelsisskerðing)
5) Kirkjuferðir geta víst verið skaðlegar
Auðvitað er ekki líkamlega hættulegt að fara í kirkju á skólatíma. Það er ekki eins og það kvikni í trúvillingum þegar þeir ganga inn á vígða jörð. Þetta vita allir og enginn hefur haldið slíku fram.
Það er þó skaðlegt að haga skólastarfi þannig að börn og foreldrar þurfi að gefa upp trúarafstöðu sína. Trú er einkamál einstaklinga sem kemur hinu opinbera ekkert við. Í sögulegu samhengi getur reyndar reynst hættulegt að leyfa hinu opinbera að halda skrá yfir trúarafstöðu fólks.
Það er líka hættulegt að hvetja til hópamyndunar í skólastarfi. Að skipta börnum upp í okkur og hin. Þá sem fara í kirkju og þá sem ekki fara í kirkju. Börn eiga ekki að þurfa að útskýra það fyrir öðrum börnum af hverju þau fara ekki í kirkjuferðalög. Foreldrar eiga ekki heldur að þurfa að útskýra fyrir börnum sínum af hverju þau þurfa að vera öðruvísi en önnur börn.
(Sjá: Skóli og trú)
6) Boðskapur kirkjunnar ≠ hlutlæg fræðsla
Því er haldið fram að kirkjuferðir í kringum jólin og heimsóknir presta í opinbera skóla séu liður í almennri fræðslu um kristna trú. Þetta er ekki rétt. Nemendur fá enga hlutlæga fræðslu um uppruna og boðskap kristinnar trúar í kirkjuferðum. Þau eru að hlusta á sálma og hugvekjur. Jafnvel að fara með bænir.
Hversu mörg börn ætli komi heim úr slíkum „fræðsluferðum“ með þær upplýsingar að það voru kristnir menn sem stálu jólunum? Ætli prestar segi nemendum frá því að kristni breiddist út með ofbeldi? Fyrst í Rómarveldi þegar trúarbrögðin voru gerð að ríkistrú? Ætli þau séu frædd um það að Íslendingar urðu fyrst „kristin þjóð“ þegar Noregskonungur skipaði öllum Íslendingum að gerast kristnir?
(Sjá: Þrjár athugasemdir við predikun biskups)
Svo lofa ég ykkur því að fáir lúterskur prestar segja nemendum frá því að Marteinn Lúter (sá sem þjóðkirkjan er nefnd eftir) hafi verið stækur gyðingahatari sem vildi drepa gyðinga og brenna bænahús þeirra. Hvað þá að hann hafi reglulega barist við djöfulinn með tónlist og prumpi (ég er ekki að grínast).
(Sjá: Marteinn Lúter – siðbótamaður eða siðleysingi?)
7) Jólin ekki kristin hátíð
Jólin eru alls ekki kristin hátíð og því er alls ekki verið að stela jólahátíðinni af kristnu fólki. Kristnir stálu jólunum! Frumkristnirmenn héldu hvorki upp á jól, né upp á fæðingu frelsarans. Guðfræðingurinn Origen frá Alexandríu benti á það árið 245 að aðeins syndugt fólk fagnaði fæðingardögum.
Jólahátíðin er forn hátíð þar sem endurfæðingu sólarinnar er fagnað. Vetrarsólstöður eru á þessum tíma sem þýðir að dagurinn fer að lengjast á ný. Í Rómarveldi var 25. desember kallaður „Dagur hinnar ósigruðu sólar“ en var síðar breytt í „dag hins ósigraða sonar“ og þá átt við Jesú.
(Sjá: Fæðingu sólarinnar fagnað)
Hættum nú þessu nöldri og búum saman til veraldlegt samfélag fyrir alla.
Gleðileg jól.
Skoða 17 athugasemdirFela athugasemdir
Frábært. Takk fyrir! Ég skrifaði um þetta á Vantrú fyrir tveim árum síðan og vonaðist til að þetta væri orðið úrelt núna, en svo er ekki. http://www.vantru.is/2012/12/12/12.00/
Þetta er þörf áminning og leiðrétting á rangfærslum í umræðunni.
Algerlega sammála og þetta er afar skýrt fram sett. Hins vegar finnst mér að jólin geti kallast hátíð allra þeirra sem vilja halda upp á þau á sinn máta, þar á meðal kristinna þó að þeir hafi valtað yfir hátíð sóldýrkenda í Róm þegar kristnin var tekin upp sem ríkistrú af Constantin keisara. Jólin eru í dag fyrst og fremst fjölskylduhátíð og upplyfting í skammdeginu og kuldanum.
Frábær pistill, sammála hverju einasta orði.
Skýrt og skorinort - flott framsetning 🙂
Akkúrat það sem ég vildi sagt hafa.
Farðu eftir þínum skrifum og hættu þá að nöldra of mikið af væli fyrir minn smekk 🙂
1. Ísland er ekki kristin þjóð. Flestir landsmenn eru kristnir = Ísland er kristin þjóð. Er þetta ekki bara orðvenja? Meirihluti hér er þá meirihluti íbúanna, þ.e. þjóðarinnar. Hér er enginn að leggja skilning í að allir séu kristnir.
2. Við búum í kristnu samfélagi og það er hefð að börn, sem vija, fái að fara til kirkju. Hversu gömul þarf hefðin að vera til að teljast hefð, ætla ég ekki dæma um.
3.-4. Ef það eru ekki mannréttindi að fá að fara í kirkju með skólanum, þá getur það varla talist mannréttindabrot að sumir kjósi að verða eftir og fái ekki að fara í sína kirkju. Hér með er ágreiningurinn leystur.
5. Hér er hægt að hártoga með allt. Trúleysi getur líka verið skaðlegt. En burtséð frá því þá er þjóðkirkjan mjög hófsöm í samanburði við mörg önnur trúarbrögð, að mínu mati. Ég efa það að það séu til mörg alvarleg (ef einhver) dæmi um skaða eftir svona ferð.
6. Boðskapur þjóðkirkjunar er hófsamur. Oft á sömu nótum og það sem við teljum almenn gildi.
7. Víst eru…
Það eru tækni villur í þessum teksta. Jólin ekki kristin hátíð. Það er ekki alveg satt. Þau voru hinsvegar ekki í kristni uphaflega. Höfundur sem beitir ser fyrir að vera siðlegur mæti alveg vera nákvæmari í orða vali sínu. Annað kvaða skilgreiningu er maðurinn að nota um veraldlegt samfelag.
Trúleysingjar eru mesti ofstækishópurinn í þessari umræðu. Reyna að hefta frelsi hinna. Skólar eiga hafa algert frelsi til að fara í samstarf við kirkjur allveg sama hvað einvherjir populistar út í bæ eru að segja. Miðstýring af þessu tagi heftir frelsi skólanna í rækta samstarf við kirkju hverfisins sem byggja á áralangri hefð. Jólahátíðin er eitthvað sem er órjúfanlegur partur í skóla og kirkjustarfi og það rennur saman. Trúfrelsið snýst um val ekki að boð og bönn. Þetta eins og að grænmetisætur myndu fara fram á að það kjöt yrði bannað í mötuneytum skólanna. Hættið nú þessu bulli og snúið ykkur að einhverju öðru.... Já eða skipuleggið hópskemmtun fyrir börnin í SIðmennt eða hjá Vantrú. Það bannar það enginn.
Ég var undirbúinn undir miklar rökræður hér. Kemur svolítið á óvart hve fáir virðast geta gagnrýnt þessa punkta, svona miðað við stemminguna í samfélaginu.
Eins og talað út úr mínu hjarta. Takk fyrir 🙂
Svo sammála!
Of margar órökstuddar fullyrðingar og ábendi til úlausna vantar, að mínu álit,.Til dæmis hafa börn valfrelsi eða eiga að hafa samhvæmt barnasáttmála SÞ.(Nema að foreldri-ar skipi þeim að vera öðruvísi,eða samkvæmt vilja foreldris-a = þvingun) Konur hafa einnig valfrelsi og hafa lengi haft hér á landi til að vinna heima eða sem "útivinnandi" húsmæður. Hvert sækir fólk fræðslu um siðferði manna annarsstaðar en í heimspekirit og trúfræðirit??Og þá einkum í kristin gildi,eða hvað??
Hættum þá þessari hræsni þá alveg. Hættum að lýsa upp borg og býli með jólaljósum þessa skammdegisdaga og afþökkum launaða frídaga. Þá verður öllum hópum gert til hæfis og allir dagar verða eins.
Takk fyrir þetta, fróðleg skrif 🙂
Margir athyglisverðir punktar, þó ég sé í grunninn ósammála lykilatriðum, set hér athugasemdir við hvern punkt.1. Mikið rétt, þjóð getur ekki verið kristin. Aftur á móti er ekki hægt að neita því að þjóðin hefur mikla sögulega tengingu við kristna trú.
2. Þarna ertu að halda því fram að kirkjuferð og trúarinnræting eigi alltaf saman. Kirkjur, líkt og kristnin hefur mikla sögulega tengingu í okkar samfélagi og það eru flottar kirkjur út um allt land. Að bera þetta saman við hefðir sem tengjast ofbeldi og misrétti finnst mér ósmekklegt
3. Þetta er rétt, það er afar mikilvægt að tryggja mannréttindi ólíkra einstaklinga. Það þýðir ekki að samfélagið taki ekki mið að meirihlutanum. Ef ég væri búsettur í ríki, þar sem Islam eða önnur trú væri ríkjandi og ætti þar barn í skóla, þá myndi mér finnast sjálfsagt mál að í skólanum væri einhver starfssemi sem tengdist viðkomandi trú, enda ekkert nema fróðlegt að kynnast því. En aftur á móti myndi ég aldrei sæt…
Fyrst svona almennt.
Það sem þú ert að tala fyrir er það sem er kallað Marxismi. Marxismi hefur gefist afar illa sem samfélagsgerð. Nánar tiltekið, eftir að Marxismi bauð svo hefilegt skipbrot á síðustu öld eins og við munum öll,var fundið upp það sem kallað er "Cultural marxism". Þetta er boðskapurinn sem þú ert að boða.
Gallinn er að hann er verri ef nokkuð er,heldur en hinn efnahagslegi Marxismi.Í lið númer 1 hnykkir þú einmitt á eini grundvallaratriði nútíma Marxisma þar sem þú segir að þjóðkirkjan sé ekki fyrir alla. Ekkert er fyrir alla,ekki einu sinni skólinn sem er til umræðu í þessum punktum.
Marxisminn gerir hinvegar ráð fyrir svona útópíu,sem er í raun ekki til eða framkvæmanleg. Ekki einu sinni æskileg.Kirkjan er ekki bara gömul hefð,heldur ein af grunnstoðum samfélagsins sem við búum í.
Íslenska samfélagið hefur þróast hér í þúsund ár og kirkjan hefur alla tíð verið mótandi áhrifavaldur í þeirri þróun. Þetta samspil kirkju og veraldslegs valds hefur svo gefið af sér be…



