Hoppa í efni

Afnám forréttinda er ekki frelsisskerðing

Sigurður Hólm Gunnarsson | 19.08.2014

Fólk sem lengi hefur verið í forréttindastöðu í samfélaginu á það til að tapa áttum. Það skilur ekki jafnrétti af því það er með bilaðan hallamæli af áralöngu óréttlæti. Fólk getur orðið svo vant forréttindum sínum að það upplifir hvert skref í átt að jafnrétti sem „árás á réttindi“. Þeir sem eru t.d. vanir forréttindum Þjóðkirkjunnar á öllum sviðum tala þannig um „afhelgun samfélagsins“ og „árás á kristindóminn“ þegar eitthvað er lagt til sem gæti skert forréttindi kirkjunnar.

Þeir sem hafa lengi verið jafnari en aðrir geta stundum ekki annað en túlkað kröfur um raunverulegt jafnrétti sem kúgun, árás eða jafnvel sem mannréttindabrot.

Raunverulegar breytingar eru ekki það eina sem virðist slá fólk með bilaðan hallamæli út af laginu. Gagnrýni á ríkjandi fyrirkomulag getur komið mörgum í uppnám. Þegar einhver leyfir sér að gagnrýna fordóma eða mismunun í nafni trúarbragða (sérstaklega kristinna trúarbragða) er sá hinn sami sakaður um að vera á móti tjáningarfrelsinu. „Má fólk ekki hafa skoðanir?“ spyrja margir þungir á brún þegar valdastofnun eða forréttindahópur er gagnrýndur.

Allir sem vilja vera sanngjarnir og horfa á hlutlaust og af yfirvegun á málin sjá að krafan um veraldlegt samfélag er krafa um frelsi og jafnrétti handa öllum.

Sanngjarnt fólk hlýtur líka að sjá að gagnrýni á ríkjandi fyrirkomulag er ekki árás á tjáningarfrelsið og afnám forréttinda er ekki frelsisskerðing.

Sjá nánar:

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Ásgrímur Jónasson 19. ágúst 2014 · á Facebook

    Hvað eru forréttindi:Ég geri ráð fyrir því að þú sért að ræða um óánægju þá sem kom fram er ríkisútvarpið ákvað að leggja af dagskrárliði sem útvarpað hefur verið frá stofnun þess, morgunbæn og kvöldandakt. Ef þetta er rétt hjá mér, þá verð ég að segja það að ég tel þessa dagsskrárliði engin forréttindi. Rök mín eru þessi.

    1. Við búum í kristnu samfélagi og höfum gert það í eitt þúsund ár.
    2. Rétt er að undanfarin ár hafa orðið hreyfingar, nokkrir íbúar hafa tekið upp önnur trúarbrögð, s.s. Islam, gyðingatrú, búddatrú o.fl., ásamt litlum hópi sem trúir á trúleysi.

    Það að þannig trúarbrögð skjóti rótum hér á landi, gefur þessum trúariðkendum ekki rétt til þess að gera kröfur til að þjóðfélagið leggi á stundinni niður allar venjur og siði sem mikill meiri hluti þjóðarinnar aðhyllist.

    Það er að mínu mati helber yfirgangur og frekja.

    Aftur á móti, ef þessum trúflokkum vex fiskur um hrygg, og vægi þeirra verður eitthvert í þjóðfélaginu, ná þeir sjálfkrafa þeirri fótfestu í þjóðfélag…

  2. Halla Sverrisdóttir 19. ágúst 2014 · á Facebook

    "Check your privilege" getur orðið þreytandi frasi, en það er nú samt alltaf hollt að taka smá "forréttindatékk" reglulega. Fyrir alla. Þegar trúaðir, og raunar líka margir þeirra sem vilja bara hafa hlutina "eins og þeir hafa alltaf verið" (nú veit ég reyndar ekki hvenær var byrjað á bænahaldi í útvarpinu, það gæti verið fróðlegt að vita nákvæmlega hversu gömul sú hefð er) tala um kúgun og mannréttindabrot er ansi oft í raun verið að tala um skerðingu á viðteknum forréttindum. Og það hefur, eins og hér kemur fram, ekkert að gera með mannréttindi.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Trú og veraldlegt samfélag

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.