Í fréttum RÚV í gær sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra að stjórnarandsstaðan væri að blása upp væntingar fólks:
„Stjórnarandstaðan hefur reynt að auka enn á væntingar til nýju ríkisstjórnarinnar og meira að segja gengið svo langt að byrja algjörlega að endurskilgreina það sem við höfum sagt í skuldamálum.“
Fyrir einum og hálfum mánuði sagði hann sjálfur á þingi:
„Í undirbúningi eru róttækustu aðgerðir stjórnvalda nokkurs staðar í veröldinni í þágu skuldsettra heimila“.
Hver er það aftur sem er að blása upp væntingar?