Hoppa í efni

Það er töff að vera trúleysingi

Sigurður Hólm Gunnarsson | 03.06.2013

Kæra barn (sem mátt ekki vegna þroskaleysis keyra bíl, gifta þig, drekka áfengi, kjósa eða stunda aðrar fullorðinsathafnir): Það stendur ekki utan á þér að þú sért trúleysingi og húmanisti. En ef þú ert það finnur þú hvað lífið þitt er dýrmætara en þegar þú trúir á einhvern guð. Ef þú ert trúleysingi þá ertu fær um að geta  elskað, grátið og hlegið. Ef þú ert trúleysingi þá ert þú fær um að geta fyrirgefið þeim sem hafa gert eitthvað á þinn hlut. Það sem meira er þá getur þú samgleðst öðrum í stað þess að öfunda.

Að efast er töff fyrir þig! Vertu töff en efastu samt!

Nú veit ég að Siðmennt sendi ekki slík skilaboð heim til barna enda væri það kjánalegt.

Bústaðarkirkju finnst þó í lagi (töff?) að senda þennan áróður til barna:

„Það stendur ekki utan á þér hvort þú trúir. En þú finnur, að lífið þitt verður dýrmætara. Þá ertu fær um að geta elskað, grátið og hlegið. Fær um að geta fyrirgefið. Kannt að samgleðjast í stað þess að öfunda.“

„Að trúa er töff fyrir þig! Vertu töff en trúðu samt!“

Má ekki leyfa börnum að vera í friði frá svona áróðri?

Viðbót 1: Í lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu segir í 7. grein:

„Í auglýsingum verður að sýna sérstaka varkárni vegna trúgirni barna og unglinga og áhrifa á þau.“

Viðbót 2: Í lögum um fjölmiðla, 38. gr. segir að óleyfilegt sé að:

„hvetja börn til þess að kaupa vöru eða þjónustu með því að notfæra sér reynsluleysi þeirra eða trúgirni“

Annað nýlegt dæmi um áróður:

Skoða 4 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Hallur Guðmundsson 3. júní 2013 · á Facebook

    Mér finnst að trú- og lífsskoðunarfélög eigi að láta börn í friði. Þau eiga að ákveða sjálf hvort þau eru trúlaus eða aðhyllist einhverja trú. Að skrifa pistil sem talar gegn ákveðinni trú og um leið segir að eitthvað sé töff ratar vissulega inn á borð barna og unglinga stangast þar af leiðandi á við það sem nefnt er í viðbótum 1 og 2. Siðmennt hefur ekki sent frá sér skilaboð um hvað sé töff og hvað sé ekki töff en pistlahöfundur kýs samt að draga Siðmennt inn í málið sem og Bústaðakirkju. Ásatrúarfélagið sendir heldur engin skilaboð um hvað sé töff, ekki gera Múslimar það og ekki hef ég séð slíkt frá Búddistum. Ég held að nær væri að segja að það sé töff að taka eigin ákvarðanir og standa á rétti sínum - óháð trúarskoðunum.

  2. Ingimar Eyfjörð Smárason 3. júní 2013 · á Facebook

    They're loosing that's why, and for good reason to :p

  3. Gísli Steinar Jóhannesson 3. júní 2013 · á Facebook

    Alveg til í þessu.

  4. Snorri Goði 3. júní 2013 · á Facebook

    Er eitthvað til sem heitir trúleysi, allir trúa á eitthvað...

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.