Hoppa í efni

ESB umræða í 23 ár! – Má ég taka upplýsta ákvörðun?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 15.01.2013

Fyrir tæpum fimm árum skrifaði ég grein þar sem ég benti á að umræðan um ESB væri búin að taka 18 ár. 18 löng ár! Ég benti á að það væri kominn tími til að sækja um aðild. Af hverju? Vegna þess að aðeins fullkláraðir samningar að loknu umsóknarferli geta gefið okkur kjósendum raunsæjar upplýsingar til að meta hvort staða okkar yrði betri innan eða utan sambandsins. Loksins var svo sótt um og loksins gat maður átt von á því að fá að taka upplýsta ákvörðun. Loksins.  En nei. Nú eru stjórnmálaflokkarnir komnir í kosningaham og þá á að hægja á aðildarumsókninni. Jafnvel hætta við eða kjósa um hvort klára eigi umsóknarferlið. Þvílík endemis vitleysa.

Getum við ekki, í nafni geðheilsu þjóðarinnar, klárað þessa blessuðu aðildarviðræður og tekið síðan upplýsta lýðræðislega ákvörðun? Ég er núna búinn að hlusta á stjórnmálamenn og hagsmunaöfl í næstum aldarfjórðung fullyrða út í loftið hvaða samningar séu mögulegir. Hættum að hlusta á hagsmunaaðila. Klárum þetta ferli og kjósum svo.

Eins og staðan er í dag hef ég ekki hugmynd um hvort ég myndi segja já eða nei við inngöngu í Evrópusambandið. Það eina sem ég veit er að ég get ekki tekið ákvörðun án þess að sjá hvaða samningur er í boði. Ég veit reyndar annað. Geðheilsa mín leyfir ekki mörg ár í viðbót af þvaðri um þetta mál.

Skoða 4 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sigurdur Holm Gunnarsson 15. janúar 2013 · á Facebook

    Enn einn kosningaveturinn framundan þar sem þvaðrað verður um ESB. Hlakkið þið ekki til?

  2. Ásmundur Hafliðason 15. janúar 2013 · á Facebook

    Má spyrja um merkinguna að baki orðahnútunum milli þeirra Sigurðar HG og Jóns SG?

  3. Lúðvík Júlíusson 15. janúar 2013 · á Facebook

    Það er svolítið áhugavert að harðir ESB sinnar, þingmenn og ráðherrar sem vilja inngöngu í ESB og búa í ríki sem hefur verið í EES í næstum því 20 ára vita ekki muninn á innlendum aðila og Íslendingi og erlendum aðila og útlendingi. Ég er ekkert rosalega bjartsýnn enda hefur sama fólk sagt Ísland vera mikla fyrirmynd fyrir ESB en ekki öfugt.

  4. Hulda Katrin Stefansdottir 15. janúar 2013 · á Facebook

    Er svo sammála þér!

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.