Miðasala hafin á midi.is og er miðaverð litlar 3.500 kr. Nánari upplýsingar á Facebook.
Steelheart, ein skemmtilegasta hár-metal hljómsveit sem til hefur verið, mun halda tónleika á NASA 8. júní næstkomandi. Þrjár frábærar íslenskar sveitir hafa verið valdar til að hita upp: Dúndurfréttir, Exizt og Atrum. Ég viðurkenni að ég er spenntur enda hef ég verið aðdáandi síðan Steelheart gaf út sína fyrstu plötu 1990.
Sú plata hét einfaldlega Steelheart og sló rækilega í gegn. Það kannast flestir við lög eins og: She‘s Gone, Can’t Stop Me Lovin’ You og I‘ll Never Let You Go (Angel Eyes).
Árið 1992 gaf bandið út plötuna Tangled in Reins sem einnig naut töluverðra vinsælda þó hún hafi aldrei orðið nálægt því eins vinsæl og fyrsta platan. Ástæðan var fyrst og fremst sú að á þeim tíma fór að halla almennt undan fæti hjá hard rokk og hár-metal böndum. Grunge tímabilið var hafið með þeim afleiðingum að sala á hárfroðu, hárlakki og maskara féll svo mikið að ég hygg að einhver snyrtivörufyrirtækin hafi farið á hausinn. En hvað um það? Tangled in Reins er virkilega góð rokkplata sem ég mæli með.
Nokkur góð lög af Tangled in Reins: Sticky Side Up, Electric Love Child, All Your Love, Mama Don’t You Cry.
Wait kom út 1996 og er í rólegri kantinum. Ég var ekkert allt of hrifinn af Wait í fyrstu en síðan hef ég skipt um skoðun. Ekki beint gamla Steelheart en inn á milli leynast ansi góð lög: We All Die Young (Úr kvikmyndinni Rock Star)*, Wait, Virgin Soul, Shangrila (Live).
Síðast gaf sveitin út Good 2B Alive árið 2008. Nokkur öflug lög þar og almennt fín plata þó ég viðurkenni að „gömlu“ lögin heilli mig meira, enda nota ég enn hárfroðu…
Lög af Good 2B Alive: LOL, Good 2B Alive, Samurai, Shine A Light For Me, You Show Me How To Love.
*Þeir sem eru það ungir að þeir muna ekki eftir Steelheart muna þá kannski eftir kvikmyndinni Rock Star (2001) þar sem Mark Wahlberg lék söngvara í hljómsveitinni „Steel Dragon“. Ekki vita þó allir að Michael Matijevic söng þar fyrir Wahlberg. Meðal annars í laginu „We All Die Young“ sem varð ansi vinsælt (lagið er jafnframt á Wait).
Hér fyrir neðan eru svo nokkur myndbönd með Steelheart. Takið eftir hvað Michael (Miljenko) Matijevic, söngvari Steelheart, er með magnaða rödd:
She‘s Gone
Can’t Stop Me Lovin’ You
I‘ll Never Let You Go (Angel Eyes)
Sticky Side Up
Electric Love Child
http://www.youtube.com/watch?v=utMcP6ActqU
All Your Love
Mama Don’t You Cry
We All Die Young (Úr kvikmyndinni Rock Star)
Wait
Virgin Soul
Shangrila (Live)
LOL
Good 2B Alive
Samurai
Shine A Light For Me
You Show Me How To Love