Hoppa í efni

Steelheart á Íslandi – 8. júní 2011

Sigurður Hólm Gunnarsson | 01.05.2011

Miðasala hafin á midi.is og er miðaverð litlar 3.500 kr. Nánari upplýsingar á Facebook.

Steelheart, ein skemmtilegasta hár-metal hljómsveit sem til hefur verið, mun halda tónleika á NASA 8. júní næstkomandi. Þrjár frábærar íslenskar sveitir hafa verið valdar til að hita upp: Dúndurfréttir, Exizt og Atrum. Ég viðurkenni að ég er spenntur enda hef ég verið aðdáandi síðan Steelheart gaf út sína fyrstu plötu 1990.

Sú plata hét einfaldlega Steelheart og sló rækilega í gegn. Það kannast flestir við lög eins og: She‘s Gone, Can't Stop Me Lovin' You og I‘ll Never Let You Go (Angel Eyes).

Merki Steelheart með rauðu hjarta.

Árið 1992 gaf bandið út plötuna Tangled in Reins sem einnig naut töluverðra vinsælda þó hún hafi aldrei orðið nálægt því eins vinsæl og fyrsta platan. Ástæðan var fyrst og fremst sú að á þeim tíma fór að halla almennt undan fæti hjá hard rokk og hár-metal böndum. Grunge tímabilið var hafið með þeim afleiðingum að sala á hárfroðu, hárlakki og maskara féll svo mikið að ég hygg að einhver snyrtivörufyrirtækin hafi farið á hausinn. En hvað um það? Tangled in Reins er virkilega góð rokkplata sem ég mæli með.

Nokkur góð lög af Tangled in Reins: Sticky Side Up, Electric Love Child, All Your Love, Mama Don't You Cry.

Wait kom út 1996 og er í rólegri kantinum. Ég var ekkert allt of hrifinn af Wait í fyrstu en síðan hef ég skipt um skoðun. Ekki beint gamla Steelheart en inn á milli leynast ansi góð lög: We All Die Young (Úr kvikmyndinni Rock Star)*, Wait,  Virgin Soul,  Shangrila (Live).

Síðast gaf sveitin út Good 2B Alive árið 2008. Nokkur öflug lög þar og almennt fín plata þó ég viðurkenni að „gömlu“ lögin heilli mig meira, enda nota ég enn hárfroðu...

Miljenko Matijevic syngur með hljóðnema og keðju.

Lög af Good 2B Alive: LOL, Good 2B Alive, Samurai, Shine A Light For Me, You Show Me How To Love.

*Þeir sem eru það ungir að þeir muna ekki eftir Steelheart muna þá kannski eftir kvikmyndinni Rock Star (2001) þar sem Mark Wahlberg lék söngvara í hljómsveitinni „Steel Dragon“. Ekki vita þó allir að Michael Matijevic söng þar fyrir Wahlberg. Meðal annars í laginu „We All Die Young“ sem varð ansi vinsælt (lagið er jafnframt á Wait).

Hér fyrir neðan eru svo nokkur myndbönd með Steelheart. Takið eftir hvað Michael (Miljenko) Matijevic, söngvari Steelheart, er með magnaða rödd:

She‘s Gone
http://www.youtube.com/watch?v=ICJs1CxCRt0

Can't Stop Me Lovin' You
http://www.youtube.com/watch?v=lqKLuegPPxk

I‘ll Never Let You Go (Angel Eyes)
http://www.youtube.com/watch?v=F-nyeiKk35M

Sticky Side Up
http://www.youtube.com/watch?v=reLEmg0_3Zo

Electric Love Child
http://www.youtube.com/watch?v=utMcP6ActqU

All Your Love
http://www.youtube.com/watch?v=KOAouJBsZFw

Mama Don't You Cry
http://www.youtube.com/watch?v=SzIM7pfigTk

We All Die Young (Úr kvikmyndinni Rock Star)
http://www.youtube.com/watch?v=Kytej72YH20

Wait
http://www.youtube.com/watch?v=DvniBg5i2YI

Virgin Soul
http://www.youtube.com/watch?v=GqoFayWmENQ

Shangrila (Live)
http://www.youtube.com/watch?v=KVkipTv7_GI

LOL
http://www.youtube.com/watch?v=wCFtfgz-jHo

Good 2B Alive
http://www.youtube.com/watch?v=gLPdfq_Mp9w

Samurai
http://www.youtube.com/watch?v=-DTpGQzFhG8

Shine A Light For Me
http://www.youtube.com/watch?v=rmxxMLGj16c

You Show Me How To Love
http://www.youtube.com/watch?v=IQo2ISc41RQ

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.