Hagstofan birti í dag nýjar tölur um trúfélagsaðild landsmanna. Fimm prósent landsmanna skrá sig nú utan trúfélaga sem er aukning um 1,4% frá því í fyrra. Langflestir (3.619) þeirra sem breyttu trúfélagsaðild sinni á síðasta ári skráðu sig utan trúfélaga. Mun færri (960) skráðu sig í einhvern fríkirkjusafnaðanna þriggja.
Þeir sem standa utan trúfélaga mynda langstærsta hópinn fyrir utan Þjóðkirkjuna.
1. Þjóðkirkjan - 77,2%
2. Utan trúfélaga - 5,0%
3. Kaþólska kirkjan - 2,9%
4. Fríkirkjan í Reykjavík - 2,7%
5. Fríkirkjan í Hafnarfirði - 1,6%
6. Óháði söfnuðurinn - 1.0%
7. Hvítasunnukirkjan á Íslandi - 0,7%
8. Ásatrúarfélagið - 0,6%
Fjöldi þeirra sem er utan trúfélaga (5,0%) er töluvert meiri en samanlagður fjöldi þeirra sem eru í Fríkirkjunni í Hafnarfirði, Óháða söfnuðinum, Hvítasunnukirkjunni á Íslandi og Ásatrúarfélaginu (Samtals 3,9%)
Hafa ber þetta í huga næst þegar talað er um þá sem eru ekki í skráðu trúfélagi sem einhvern jaðarhóp.
