Hoppa í efni

Fer formaður Lögmannafélags Íslands með rangt mál?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 11.04.2011

Brynjar Níelsson talar í hljóðnema.Ég tók eftir því að í grein á Pressunni segir Brynjar Nielsson, formaður Lögmannafélags Íslands, orðrétt:

„Hvorki ég né aðrir nei-sinnar fullyrtum að dómstólaleiðin gæti ekki leitt til verri niðurstöðu en samningurinn.“ [feitletrun SHG]

Nú er ég ekki lögfræðingur, en mér heyrðist lögfræðingurinn einmitt fullyrða þetta í viðtali í þættinum Í bítið á Bylgjunni. Þar segir Brynjar Nielsson eftirfarandi um dómstólaleiðina: „hún getur aldrei orðið verri…“

Heimir Karlsson: „En þú hlýtur Brynjar vegna þess að þú vilt frekar taka áhættuna og fara dómsstólaleiðina…“

Brynjar Nielsson: „…Það er vegna þess að hún getur aldrei orðið verri vegna þess að við verðum aldrei dæmd til að greiða nema þessar 20 þúsund Evrur.“

Dæmi nú hver fyrir sig.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (853) →

Fleiri greinar sem tengjast: Efnahagur og atvinnulíf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.