Eiríkur Hauksson, Ken Hensley og Dúndurfréttir


Eiríkur HaukssonÞá er maður búinn að panta miða á tónleika Eika Hauks, Ken Hensley og Dúndurfrétta í Austurbær 30. apríl. Það verða margir úr minni fjölskyldu á tónleikunum. Þar á meðal Pálína, bræður hennar, Halli bróðir minn og Pabbi okkar. Þetta verður því eins og fermingarveisla, nema bara skemmtilegt.

Eiríkur Hauksson og Sigurður HólmEiríkur Hauksson er í miklu uppáhaldi hjá mér og sama má segja um Dúndurfréttir. Hef farið nokkrum sinnum á tónleika með bæði Eika og Dúndurfréttum og alltaf skemmt mér konunglega (Nema reyndar þegar Eiríkur hélt tónleika í spinningsalnum í Veggsporti þar sem hann söng og við hin hjóluðum við dúndrandi Deep Purple lög. Það var meira svona vont-gott …).

ArtchEiríkur Hauks er bestur þegar hann er í metalinu og er ég þannig enn mikil aðdáandi ARTCH – gamla þungarokksbandinu hans. Fyrir þá sem ekki vita gaf ARTCH út tvo brilliant metaldiska: Another Return (1988) og For The Sake Of Mankind (1991).

Dúndurfréttir eru vægast sagt frábært band. Hef nokkrum sinnum hlustað á þá flytja lög eftir Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple og fleiri óaðfinnanlega. Að sumu leiti er ég spenntari fyrir því að hlusta á íslensku kappana en Hensley sem ég hef lítið fylgst með nema í gegnum Uria Heep (sem áttu mörg mjög góð lög).

Hver er þín skoðun?

Efnisorð:


3 athugasemdir

  1. Mig grunar að þetta verði miklu betri Heep tónleikar heldur en þeir sem haldnir voru hér um árið undir forystu Mick Box. Ég vona samt að syntin hans skemist í flutningum og að kallin neyðist til að halda sig við Hammondinn og slide gítarinn

  2. Bíddu, bíddu… það var ekki verið að tala við mig, ha. uppáhaldsfrændann þinn… Your brother in music… hehe

    Reyndar vissi ég ekkert af þessum tónleikum, fyrr en núna. Eru enn til miðar?

  3. Síðast þegar ég vissi voru til miðar. Hringdu í Austurbæ. Hvað kemur til að Steini frændi veit ekki af tónleikum???

Hver er þín skoðun?

Um Skoðun

Vefritið Skoðun hóf göngu sína 23. júní 1999.

Sigurður Hólm Gunnarsson er fæddur 1976 í Reykjavík. Sigurður er iðjuþjálfi, starfar sem forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga í Reykjavík og situr í stjórn Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi.