Endurskoðun samfélagslegra venja og athafna er nauðsynlegt fyrirbæri. Nauðsyn endurskoðunar er ekki öllum sjánleg á hverjum tíma og er því oft uppspretta deilna.
Endurskoðun sem nú er brýn á Íslandi er lengd vinnudags. Í rúma þrjá áratugi hefur vinnudagurinn lítið sem ekkert styst. Engu að síður er vinnudagurinn langur og rannsóknir sýna að hann hefur truflandi áhrif á heimilislíf fólks.
Milli áranna 1980 og 2008 fækkaði árlegum unnum stundum um 56 – það er rúmlega einni vinnustund færra á viku. Hraðinn er svo hægur að það tæki um það bil öld að ná þeim fjölda vinnustunda sem tíðkast í Svíþjóð, en munurinn á vikulegum unnum stundum var árið 2008 um 4 stundir – Svíþjóð í vil. Vinnustundir eru eins umtalsvert færri í Noregi, Danmörku og Finnlandi.1
Langar vinnustundir á Íslandi taka sinn toll. Í alþjóðlegri rannsókn sem var gerð fyrir nokkrum árum kom í ljós að vinnan hefur slæm áhrif á heimilislíf hér á landi – í engu öðru þátttökulandi var meira kvartað undan þreytu vegna vinnu, en hér á landi. Um það bil einn af hverjum fjórum átti nokkrum sinnum í viku erfitt vegna þreytu, með að sinna heimilislífi. Þátttökulönd voru fjölmörg lönd í Evrópu, Kanada, Bandaríkin, Ástralía og fleiri.2
Einhverjir eru tilbúnir til að kalla svona lagað „leti“ eða einhverjum álíka uppnefnum. Staðreyndirnar tala hins vegar öðru máli: Rannsókn gerð með gögnum úr alþjóðlegum gagnabönkum sýnir að á Íslandi er umfang vinnunnar eitt hið mesta í Evrópu og jafnvel þótt víðar sé leitað. Í engu landi reyndist umfang vinnunnar meira en á Íslandi. Jafnvel í S-Kóreu er það örlítið minna. Í þessari rannsókn voru fjölmörg lönd skoðuð, m.a. mörg Evrópuríki, Bandaríkin, lönd í S-Ameríku o.fl.3 Umfangið byggist á tveimur mælikvörðum: Vinnustundum og atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttakan er mikil á Íslandi (um 85%) sem er met, miðað við hin löndin í rannsókninni. Vinnustundir eru líka margar, eins og fyrr segir.
Við þetta allt saman bætist sú staðreynd að fólk vill vinna minna; rannsóknin sem var fyrst nefnd leiddi í ljós að um 42% vildu vinna minna.4
Á tímum þar sem vinnan er í meira mæli unnin af vélum er í hæsta móta undarlegt hve mikið við vinnum. Við getum hæglega stytt vinnudaginn, eins og hefur verið gert annars staðar í Evrópu, t.d. Þýskalandi.
Tími endurskoðunar er löngu kominn; styttum vinnudaginn. Styttinguna þurfum við að gera án þess að skerða laun og má í því samhengi líta til landa þar sem stytting hefur farið fram án launaskerðingar, nú eða þá til reynslunnar hér á Íslandi á sjötta, sjöunda og áttunda áratugnum (sjá mynd). Stytting vinnudagsins er fjölskyldunum í landinu mjög mikilvæg.
Myndin sýnir hvernig vinnutími á Íslandi styttist á árunum 1960 til um 1980, á sama tíma og laun hækkuðu. Eftir 1980 hefur orðið stöðnun á vinnutíma.
2. Kolbeinn Stefánsson (2008). Samspil vinnu og heimilis: Álag og árekstrar. Rannsóknarstöð Þjóðmála.
3. Úr óbirtri rannsókn Kolbeins Stefánssonar. Gögnin að baki rannsókninni koma frá OECD og miðast við árið 2009.
4. Kolbeinn Stefánsson (2008).
Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
Þörf hugleiðing hjá Guðmundur D. Haraldsson, við þurfum að endurskoða gildi vinnunnar og fara að sjá gildi þess að auka þann tíma sem við höfum til eigin ráðstöfunar fyrir okkur og þá sem eru í kringum okkur.




