Hoppa í efni

USA – þar sem tryggingar snúast um fólk?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 24.06.2007

Veggspjald kvikmyndarinnar Sicko.Ég horfði á Sicko – nýjustu áróðursmynd Michael Moore – áðan. Umfjöllunarefnið er heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum og fórnarlömb þess. Mynd Moore er, eins og hans fyrri myndir, áróðurskennd og einhliða en engu að síður afar áhugaverð. Spilað er á tilfinningar áhorfenda og er það gert vel. Ekki er laust við að rakastigið í mínum augum hafi aukist nokkuð á meðan myndinni stóð. Hvað sem menn vilja annars segja um Moore og vinnubrögð hans er öllum ljóst að eitthvað er verulega rotið í Kanaveldi.

Sicko fjallar ekki sérstaklega um þær 47 milljónir Bandaríkjamanna sem hafa enga sjúkratryggingu (af því þeir hafa ekki efni á henni) heldur er einblínt á þá sem eru svo „heppnir“ að vera tryggðir. Því eins og margir tryggingartakar vita þá eiga slagorð eins og „Ef þú ert tryggður, þá færðu það bætt“ oft til að vera innantóm (mundu að lesa smáletrið).

Flestir Íslendingar þekkja sögur af hrakförum einstaklinga við að fá tjón sitt bætt hjá tryggingafélögunum. Hvað sem auglýsingarnar annars segja þá reyna tryggingafélögin alltaf að komast undan því að greiða. Tryggingar eru business! Það sama á við hvort um er að ræða bílatryggingar eða sjúkratryggingar.

Samkvæmt því sem fram kemur í Sicko fá starfsmenn sjúkratryggingafélaga t.a.m. bónus og launahækkanir ef þeir eru duglegir við að koma vinnuveitanda sínum hjá því að greiða fyrir læknismeðferð viðskiptavina sinna. Því færri sem fá þjónustu því meira græðir fyrirtækið. Trygginga- og lyfjafyrirtækin greiða svo fúlgur fjár á hverju ári til að lobbíera gegn öllum lagabreytingum sem gætu komið þeim illa. Sýni bandarískir stjórnmálamenn minnsta stuðning við opinbera heilbrigðisþjónustu eru þeir umsvifalaust stimplaðir kommúnistar og bendlaðir við Stalín og aðra brjálæðinga. „Opinber heilbrigðisþjónusta? Hvað næst? Samyrkjubú og myndir af Maó formanni inn á öll heimili?“ Það kemur því vart á óvart að algengasta gagnrýni á myndina og Moore er sú að myndin sé „kommúnistaáróður“ og Moore hreinræktaður „Bandaríkjahatari“ sem eigi að halda kjafti og hypja sig til Kanada, eða jafnvel enn verr til Frakklands.

Ég mæli semsagt með Sicko þó eflaust megi gagnrýna Moore fyrir áróðurskennd vinnubrögð. Bandaríska heilbrigðiskerfið er rotið og víti til að varast.

Sjá nánar:
Sicko (IMdb)

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.