Hoppa í efni

Þursaflokkurinn – gæða prog rokk

Sigurður Hólm Gunnarsson | 12.04.2008

Fór á vægast sagt stórkostlega tónleika í gær með Þursaflokknum en tónleikarnir voru haldnir á Græna Hattinum hér á Akureyri. Fyrir tónleikana hafði ég lítið hlustað á Þursana, aðeins heyrt eitt og eitt lag í útvarpinu. Það kom mér því á óvart hversu þrusugott band þetta er. Þursarnir spila gæða progressive rokk sem um margt minnir á Dream Theater. Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að Dream Theater væru undir áhrifum Þursanna.

Mæli eindregið með Þursatónleikum fyrir þá sem hafa gaman af progressive rokki.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Bjarni Þór 17. apríl 2008

    Þursarnir líkir Dream theater? ertu að grínast eða er þér fyllsta alvara?

  2. Sigurður Hólm Gunnarsson 17. apríl 2008

    Mér er fyllsta alvara. Hef hlustað lengi á DT og á tónleikum með Þursunum heyrði ég margt sem var keimlíkt.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.