Hoppa í efni

Siðmennt gagnrýnir aukið trúboð í opinberum skólum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 04.10.2006

Siðmennt sendi í dag frá sér fréttatilkynningu þar sem félagið gagnrýnir aukið trúboð í opinberum skólum. Þjóðkirkjan neitar því reglulega að hún stundi trúboð í skólum en það er morgunljóst að það er engu að síður gert.

Fréttatilkynningu Siðmenntar er hægt að lesa á vefsíðu félagsins. (Sjá: www.sidmennt.is).

Umrætt trúboð Þjóðkirkjunnar er sérstaklega áhugavert í ljósi þess að fyrir stuttu síðan fullyrtu talsmenn Kirkjunnar að ekkert trúboð færi fram í skólum. (Sjá: Fjölmiðlaumfjöllun um trúboð í skólum dregin saman).

Fréttatilkynning vegna Vinaleiðar

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur á undanförnum árum bent á óviðeigandi starfsemi trúfélaga, einkum Þjóðkirkjunnar, í opinberum skólum.

Siðmennt vill með þessu bréfi vekja athygli á svokallaðir Vinaleið sem er kristileg sálgæsla og fer fram í opinberum skólum.

Tillögur Siðmenntar
1. Starf Vinaleiðarinnar verði stöðvað umsvifalaust í öllum skólum á landinu þannig að tryggt sé að trúfrelsi og hlutleysi verði virt í opinberum skólum.

2. Menntayfirvöldum sveitarfélaganna ásamt skólastjórnendum verði gert að skilja að skóla og kirkju. Öll verkefni í leikskólum og grunnskólum sem eru á vegum trúfélaga verði umsvifalaust lögð af.

3. Útbúnar verði skýrar verklagsreglur til handa skólastjórnendum og kennurum svo tryggt verði að trúarlegt starf verði ekki stundað í opinberum skólum.

ATH: Meðfylgjandi er bréf (Vinaleið.pdf) sent á menntamálaráðherra þar sem trúboð í formi Vinaleiðar er harðlega gagnrýnt. Engum sem les þetta bréf getur dulist að Vinaleiðin er trúboð sem hlýtur að teljast afar óviðeigandi í opinberum skólum og ber að stöðva strax.

Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Hólm Gunnarsson
Varaformaður Siðmenntar
S: 898-7585

Skoða 5 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Halla Jónsdóttir 23. október 2006

    Mig langar að vita hver skoðun Siðmenntar er á jólaundirbúningi í opinberum skólum? Nú er jólaföndur stór hluti af undirbúningi jólanna og mikið gert af því skólunum, þó sérstaklega í yngri deildunum og er þá verið að vinna með fæðingu jesú, Maríu mey og vitringana 3 svo eitthvað sé nefnt. Músastigar og jólasveinar hafa í sjálfu sér ekki svo mikið með Kristni að gera en eru engu að síður partur af undirbúningi kristinna jóla. Er það ykkar skoðun að taka eigi fyrir allan jólaundirbúning í grunnskólum landsins?

  2. Sigurður Hólm Gunnarsson 27. október 2006

    Sæl Halla. Fyrst ber að nefna að jólin eru heiðin hátíð sem flestir taka þátt í. Það er auðvitað ekkert kristilegt (eða trúarlegt) við jólasveininn, jólatréð, jólapakka eða góðar stundir með fjölskyldunni. Það er í góðu lagi að fjalla um hvernig trú kristinna tengist jólunum og kynna fyrir börnum að kristnir trúi því að frelsari þeirra hafi fæðst á jólunum. Um leið er lágmark að fjalla um upprunalega merkingu jólanna.

    Siðmennt mótmælir því aðeins ef börn eru látin fara með eða búa til kristilegar bænir eða að þeim sé kennt að einhver goðsögn (t.d. meyfæðingin og upprisan) sé staðreynd. Afstaða Siðmenntar er alltaf sú sama. Siðmennt styður, og jafnvel hvetur til, fræðslu um trúarbrögð og menningu en mótmælir um leið öllu trúboði.

    Vonandi svarar þetta spurningu þinni.

  3. Sigurður Breiðfj. Jónsson 14. nóvember 2006

    Ég fagna því að trúboði í skólum sé mótmælt.
    Það á að fræða börn um trúarbrögð og siðfræði í skólum, en ekki kenna þeim einhverja eina trú. Sama hver hún er.
    Það er, eða ætti að vera val/hlutverk foreldranna.

    Jólin eru svo ekki eign heiðinna frekar en kristinna, eða annarra.
    Jólin eru allra:)

  4. Stefán Guðmundsson 15. nóvember 2006

    Ég sem foreldri barns á grunnskólaaldri fagna starfi Vinaleiðarinnar í grunnskólum og persónulega heyrist mér allir foreldrar sem ég þekki vera ánægðir með það. Þessvegna skil ég ekki að örsmár hópur sem starfar undir nafninu Siðmennt skuli rísa á óskiljanlegan hátt gegn þessu. Ísland er kristið þjóðfélag og því er kristnifræði eðlilega kend í skólum landsins. Ég kæri mig ekki um að Siðmennt setji sig upp á móti kristilegu uppeldi á mínu barni.

  5. Sigurður Hólm Gunnarsson 15. nóvember 2006

    Kæri Stefán,

    Siðmennt berst einfaldleg fyrir trúfrelsi á Íslandi. Þar með aðskilnaði skóla og kirkju. Við berjumst líka fyrir rétti trúfélaga til að bjóða upp á hvaða þjónustu sem er svo lengi sem sú þjónusta skaðar ekki réttindi annarra. Þjóðkirkjan má þannig bjóða upp á Vinaleið í öllum kirkjum sínum ef hún kýs að gera það. Opinberir skólar (reknir af öllum skattgreiðendum) eiga að vera veraldlegar stofnanir lausar við allan áróður. Ef þú ert ósammála því er lítið við því að gera.

    Orð þín og annarra um “kristið þjóðfélag” eru móðgandi fyrir fjöldann allan af þeim Íslendingum sem ekki eru kristnir. Ísland er einfaldlega þjóðfélag allra þeirra sem byggja landið. Ég er hluti af íslensku þjóðfélagi og því er íslenskt þjóðfélag ekki kristið.

    Réttlæti er auk þess óháð fjölda og prósentutölum. Þannig eiga samkynhneigðir, fólk af asískum uppruna, þroskaheftir og örvhentir rétt á að mannréttindi þeirra séu virt algjörlega óháð því hversu fámennir eða fjölmennir þessir hópar eru. Út á þetta gengur almennt siðferði og vonandi þitt kristilega siðferði líka.

    Aftur vil ég árétta að Siðmennt er ekki á móti “kristilegu uppeldi” á þínu barni. Þú getur alið barn þitt upp eins og þér sýnist (svo lengi sem þú fylgir lögum landsins). Þú hefur hins vegar ekki rétt á því að neyða kristilegt uppeldi upp á alla íslensku þjóðina af því að þú ert kristinn eða af því að óskilgreindur meirihluti er kristinn.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Trú og veraldlegt samfélag

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.