Hoppa í efni

Losing Faith in Faith

Sigurður Hólm Gunnarsson | 03.11.2008

Losing Faith in Faith Eftir: Dan Barker Umfjöllun: Dan Barker var bókstafstrúarmaður og farandspredikari. Hann trúði á sköpunarsöguna, alvaldan Guð og að Jesú Kristur væri frelsari sinn. Barker var þekktur fyrir að búa til kristileg lög og hann skrifaði trúartexta fyrir börn.  Smá saman fór Barker þó að efast og með efanum fylgdi forvitni. Hann byrjaði að lesa meira um trúarbrögð og heimspeki. Hann las bækur eftir Thomas Paine, Robert Ingersol og fleiri fríþenkjara og fljótlega var Barker ekki lengur bókstafstrúarmaður heldur frekar „barnatrúar“.

loosing_faith_in_faithHann trúði áfram á ópersónulegan guð en var farinn að hafna kraftaverkunum og goðsögunum. Í dag er Dan Barker trúleysingi og fríþenkjari. Í þessari bók segir Barker okkur frá því hvernig hann missti trúna og breyttist í trúleysingja. Hann fjallar um trú, siðferði og heimspeki listilega vel og gefur einstaka innsýn inn í ferðalag bókstafstrúarmanns í átt að trúleysi.

Dan Barker á Wikipedia

Skoða 5 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sindri Guðjónsson 11. nóvember 2008

    Var Dan Barker "faraldspredikari"? 🙂
    Hef aldrei heyrt um þá fyrr. Ágætis bók.

  2. Sigurður Hólm Gunnarsson 11. desember 2008

    Haha. Takk fyrir þessa ábendingu 🙂

  3. Bylgja 19. júlí 2009

    Þessa bók ætla ég að lesa.
    Reyndar ertu að benda mér á margar áhugaverðar bækur  hér.

  4. Bylgja 19. júlí 2009

    Benda "mér" persónulega á bækurnar hahaha

  5. Sigurður Hólm Gunnarsson 19. júlí 2009

    🙂 Já þetta er skrifað til þín Bylgja.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (850) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.