Hoppa í efni

Kominn heim

Sigurður Hólm Gunnarsson | 06.10.2005

Eins og það getur verið gaman og áhugavert að ferðast er alltaf jafn gott að koma aftur heim. Ferðalag mitt til Kanada var ágætt fyrir utan þá óskemmtilegu reynslu að þurfa að millilenda í Bandaríkjunum á leiðinni. Á leiðinni út var ég yfirheyrður fjórum sinnum af ókurteisum landamælavörðum sem komu fram við mig eins og ótýndan glæpamann. Það er eitthvað sorglegt við það að geta ekki ferðast til lands frelsisins án þess að lenda í yfirheyrslum og að teknar séu af manni myndir og fingraför! Það er gott að vera kominn heim.

Skoða 2 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sveinn Hjörtur 20. október 2005

    Ævinlega velkomin heim, Sigurður! Vissulega bregður manni þegar Ameríkan er heimsótt, en þetta eru þeirra varúðarráðstafanir!

  2. Brynjólfur Þór Guðmundsson 22. október 2005

    Sæll félagi. Þú ert ekki einn um að lenda í vandræðum í BNA. Bandaríkjastjórn hefur þurft að biðja Frakka afsökunar vegna þess að landamæravörður gekk of harkalega fram við komu fransks ráðherra til Bandaríkjanna.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (841) →

Fleiri greinar sem tengjast: Persónulegt og daglegt líf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.