Hoppa í efni

Hljómsveitin Hraun er frábær

Sigurður Hólm Gunnarsson | 14.07.2007

Gítarleikari á sviði í ljósum.Ég og kærastan mín fórum á tónleika með hljómsveitinni Hraun í gærkvöldi. Tónleikarnir voru haldnir á Græna Hattinum (á Akureyri fyrir ykkur borgarbörnin). Af einhverjum ástæðum hafði ég aldrei heyrt um þetta band áður, en ég er sannfærður um að ég eigi eftir að heyra meira frá því í framtíðinni. Þessir tónleikar voru vægast sagt stórkostlegir. Svavar Knútur, söngvari sveitarinnar, söng eins og engill og tónlistinn í senn falleg, melankólísk og hressandi. Þó tónlistin hafi verið hádramatísk og tilfinningaþrungin á köflum (ég fékk tár í augun og gæsahúð) var stutt í hláturinn enda hljómsveitarmeðlimir afar fyndnir og skemmtilegir. Ég hvet alla til að kynna sér Hraun og nýja diskinn þeirra „I can’t believe it’s not happiness“

Sjá nánar:
Vefsíða Hrauns

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Sveinn Arnarsson 14. júlí 2007

    Hraun eru einmitt alveg ægilega skemmtilegir, var leiðinlegt að komast ekki á þessa snilldartónleika.

  2. Þorsteinn Kolbeinsson 16. júlí 2007

    Frændi, hefur þú kynnt þér dönsku hljómsveitina Saybia? Þessi sveit kom fram á sjónvarsviðið eitthvað í kringum 2001 (plús mínus 1-2 ár) og varð bráðlega ein af vinsælustu sveitum Danmerkur. Hraun minna mig eilítið á þá.

    Tékkaðu á þessu: http://www.saybia.dk/index.php?id=27

  3. Svavar Knútur 17. júlí 2007

    Hey Sigurður,
    takk kærlega fyrir góð orð.
    Þessir tónleikar voru mjög skemmtilegir og ótrúlega gaman að spila á þessum stað.
    Hlakka bara til að sjá þig aftur fljótlega.
    Bestu kveðjur,
    Svavar Knútur

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.