Hoppa í efni

Frábærir tónleikar!

Sigurður Hólm Gunnarsson | 13.07.2003

Hljómsveitin Mastodon.Tónleikarnir í gær með Mastodon voru vægast sagt góðir. Íslensku böndin Dark Harvest og Brain Police stóðu sig vel og voru báðar klappaðar upp af rokkþyrstum áhorfendum. Þegar Mastodon steig á svið varð allt vitlaust, enda Grand rokk fullur af rokkurum á öllum aldri. Mastodon spilar aftur og í síðasta sinn á Gauk á stöng í kvöld.


Eins og sjá má á myndum sem ég tók var mikill fjöldi á Grand rokk í gær og frábær stemming. Satt best að segja fóru þessir tónleikar fram úr mínum björtustu vonum.

Þorsteinn frændi (Steini rokk) á mikinn heiður skilið fyrir að standa vel að þessum tónleikum. Ég er sannfærður um að hann eigi eftir að bjóða Íslendingum upp á fleiri gæðatónleika þegar fram líða stundir. Kudos to you Steini!

Tónleikarnir á Gauknum hefjast klukkan 20 í kvöld og að þessu sinni hita rokkararnir í Forgarði helvítis, Changer og Brutal upp fyrir Mastodon. Ég hvet alla þá sem misstu af tónleikunum í gær til að mæta í kvöld!

Sjá nánari upplýsingar um Mastadon og tónleikana á:

www.dordingull.com/tonleikar

(skjal ekki lengur aðgengilegt)

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.