Hoppa í efni

Ert þú á móti trúfrelsi?

Sigurður Hólm Gunnarsson | 10.10.2014

Ef marka má niðurstöður úr nýlegri könnun MMR til afstöðu Íslendinga til þess að mismunandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi virðast margir vera á móti trúfrelsi. Ert þú einn af þeim?

Spurt var:
„Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því að eftirfarandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi? 
-með trúarbyggingum er átt við byggingar svo sem moskur, hof, kirkjur og musteri.“

Ekki var verið að spyrja hvort hið opinbera ætti að styrkja trúfélög sérstaklega eða hvaða afstöðu fólk hefur til einstakra trúarbragða. Einfaldlega var spurt hvort trúfélög ættu að fá að byggja trúarbyggingar.

Ótrúlega margir virðast vera á móti þeim sjálfsagða rétti trúfélaga að byggja trúarbyggingar og þar með á móti trúfrelsi.

Trúfrelsið, rétt eins og tjáningarfrelsið, snýst ekki um að leyfa bara það sem maður er sjálfur sammála um eða sáttur við. Trúfrelsi snýst um þau grundvallarmannréttindi að fólk megi iðka trú sína í friði fyrir ofríki hins opinbera, svo lengi sem átrúnaðurinn skaðar ekki aðra með beinum hætti.

Nú kann að vera að einhverjir hafi ekki skilið spurninguna og fólk talið sig vera að svara einhverju allt öðru. Eins og því hvaða skoðun það sjálft hefur á einstaka trúarbrögðum eða hvort það telji að ríkið eigi sérstaklega að styðja ákveðin trúarbrögð með því að afhenda lóðir undir byggingar.

Þessi hugsanlegi misskilningur útskýrir samt ekki svörin nægilega vel því afstaða þeirra sem tóku þátt til trúfrelsis virðist vera breytileg eftir því um hvaða trú er verið að ræða. Þannig eru 9.5% á móti því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar en 42,4% á móti því að múslimar fái að byggja sínar byggingar. Rúmlega 33% eru svo á móti því að Rússneska rétttrúnaðarkirkjan fái að reisa sitt guðshús.

Tölurnar sýna að margir byggja afstöðu sína til trúfrelsis á því hversu vel eða illa þeim líkar við mismunandi trúarbrögð eða söfnuði.

Þegar kemur að trúfrelsi virðast margir Íslendingar telja að sumir séu jafnari en aðrir.

Ég sem trúleysingi, húmanisti og baráttumaður fyrir aðskilnaði ríkis og kirkju (og trúar almennt) vil að allir hafi sama rétt til að reisa sínar trúarbyggingar. Stjórnvöld eiga að tryggja rétt allra til að iðka sína trú í friði og vernda um leið tjáningarfrelsið og veraldlegar stoðir samfélagsins. Veraldlegt samfélag er eina raunhæfa leiðin til að tryggja frelsi og umburðarlyndi í samfélagi* þar sem býr fólk með ólíkar skoðanir.

*Þannig eru auðvitað öll samfélög.

Skoða 5 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Guðmundur Auðunsson 10. október 2014 · á Facebook

    Helga, eigum við líka að fara að vitna í biblíuna? Hún er ef eitthvað er enn ógeðslegri.

  2. Sigurdur Holm Gunnarsson 10. október 2014 · á Facebook

    Eigum við þá Helga Valkyrja að vitna líka í Biblíuna? Ok:
    http://skepticsannotatedbible.com/cruelty/long.html

    Number of Cruel or Violent Passages
    Bible 1214
    Quran 527

    Just saying...

  3. Guðmundur Pálsson 10. október 2014 · á Facebook

    Það er mjög skiljanlegt að fólk sé uggandi yfir islamstrú þegar hún birtist með svo miklum öfgum, ögrunum og hernaði gegn saklausu fólki eins og raun ber vitni í fréttum undanfarið.

    Ég tel að óttinn sé ekki ástæðulaus og almenningur hafi rétt fyrir sér.

    Náttúruleg niðurstaða þessa er að menn hafni moskum af þeirri ástæðu og telji islam einfaldlega síðri trúarbrögð en kristnin.
    Hér eins og oft áður ræðst afstaða fólks ekki af fræðilegum úttektum heldur einfaldri observasjón. Þetta er ekki slæmt heldur af því góða.

  4. Sturla Þórðarson 10. október 2014 · á Facebook

    Það er þó ekki hægt að ætla rikjum og bæjarfelögum að stirkja trú felög. Eigum við kannski að stofna söfnuð í kringum the Flying Spageti monster og the holy flying teapot.

  5. Muhammad Awais Tipu 10. október 2014 · á Facebook

    Thou shall Rape, Marry, and Divorce Pre
    pubescent Girls. Koran 65:4
    Surah Al-Talaq 65:4 -Such of your women as have passed the age of monthly courses, for them the prescribed period, if ye have any doubts, is three months, and for those who have no courses (it is the same): for those who carry (life within their wombs) their period is until they deliver their burdens: and for those who fear Allah,He will make their path easy.Still looking for the word r.ape in that verse.

    2. Thou shall have Sex Slaves and Work
    Slaves. Koran 4:3, 4:24, 5:89, 33:50, 58:3,
    70:30
    Surah Al-Mujadilah 58:3 -But those who divorce their wives by Zihar, then wish to go back on the words they uttered― (it is ordained that such a one) should free a slave before they touch each other: this are ye admonished to perform: and Allah is well- acquainted with (all) that ye do.Where is the sex slaves in this verse?

    Thou shall have 4 Muslim male witnesses to prove rape. Koran 24:13
    Surah An-Nur 24:12-13 -Why did not Bel…

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Trú og veraldlegt samfélag

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.