Hoppa í efni

Eiríkur Hauksson, Ken Hensley og Dúndurfréttir

Sigurður Hólm Gunnarsson | 27.03.2008

Þá er maður búinn að panta miða á tónleika Eika Hauks, Ken Hensley og Dúndurfrétta í Austurbær 30. apríl. Það verða margir úr minni fjölskyldu á tónleikunum. Þar á meðal Pálína, bræður hennar, Halli bróðir minn og Pabbi okkar. Þetta verður því eins og fermingarveisla, nema bara skemmtilegt.

Eiríkur Hauksson er í miklu uppáhaldi hjá mér og sama má segja um Dúndurfréttir. Hef farið nokkrum sinnum á tónleika með bæði Eika og Dúndurfréttum og alltaf skemmt mér konunglega (Nema reyndar þegar Eiríkur hélt tónleika í spinningsalnum í Veggsporti þar sem hann söng og við hin hjóluðum við dúndrandi Deep Purple lög. Það var meira svona vont-gott …).

Eiríkur Hauks er bestur þegar hann er í metalinu og er ég þannig enn mikil aðdáandi ARTCH – gamla þungarokksbandinu hans. Fyrir þá sem ekki vita gaf ARTCH út tvo brilliant metaldiska: Another Return (1988) og For The Sake Of Mankind (1991).

Dúndurfréttir eru vægast sagt frábært band. Hef nokkrum sinnum hlustað á þá flytja lög eftir Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple og fleiri óaðfinnanlega. Að sumu leyti er ég spenntari fyrir því að hlusta á íslensku kappana en Hensley sem ég hef lítið fylgst með nema í gegnum Uria Heep (sem áttu mörg mjög góð lög).

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Tommi 31. mars 2008

    Mig grunar að þetta verði miklu betri Heep tónleikar heldur en þeir sem haldnir voru hér um árið undir forystu Mick Box. Ég vona samt að syntin hans skemist í flutningum og að kallin neyðist til að halda sig við Hammondinn og slide gítarinn

  2. Steini frændi 1. apríl 2008

    Bíddu, bíddu... það var ekki verið að tala við mig, ha. uppáhaldsfrændann þinn... Your brother in music... hehe

    Reyndar vissi ég ekkert af þessum tónleikum, fyrr en núna. Eru enn til miðar?

  3. Sigurður Hólm Gunnarsson 2. apríl 2008

    Síðast þegar ég vissi voru til miðar. Hringdu í Austurbæ. Hvað kemur til að Steini frændi veit ekki af tónleikum???

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.