Hoppa í efni

Barátta Sjálfstæðisflokksins gegn frelsinu

Sigurður Hólm Gunnarsson | 18.11.2013

Ávarp Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra á kirkjuþingi á laugardaginn staðfestir að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki flokkur frelsisins fyrir fimmaura.  Rétt eins og margir aðrir talsmenn flokksins virðist ráðherrann ekki skilja hugtakið trúfrelsi eða vera beinlínis á móti því.

Hanna Birna kvartar yfir því að settar hafi verið reglur sem banna trúariðkun og trúboð í opinberum grunnskólum. Í skólum sem eiga að vera fyrir alla. Ráðherrann veit að hér er skólaskylda og það varðar beinlínis við lög að senda börn ekki í skóla. Af þeirri ástæðu er sérstaklega óviðeigandi að trúboð og bænahald fari fram í opinberum skólum.

Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hversu margir talsmenn Sjálfstæðisflokksins styðja stórtæk ríkisafskipti af trúarlífi almennings. Í heimsku minni og fáfræði hélt ég að sá flokkur sem hefur eignað sér frelsishugtakið myndi styðja grundvallarmannréttindi eins og trúfrelsið.

Kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hefðu gott af því að lesa bréfið sem Siðmennt sendi öllum þingmönnum síðastliðinn október. Þar er raunverulega frelsisstefnu að finna. Skýr krafa um trúfrelsi, tjáningarfrelsi og afnám sérréttinda.

Skoða 3 athugasemdirFela athugasemdir
  1. Gunnar Rúnar Ingibjargarson 18. nóvember 2013 · á Facebook

    Siðmennt er lítið annað en hækjustafur félag vantrúar, þeir hata allt sem tengist kristinni trú, það er bara þannig...

  2. Ásgeir Valur Sigurðsson 18. nóvember 2013 · á Facebook

    Eða Siðmennt og Séð og Heyrt. Ef við viljum hafa hér trúfrelsi getum við ekki t.d. haft mosku í Reykjavík. Ef við viljum hafa hér trúfrelsi verður fólk að geta fengið að biðja (anda) í skólum. Menn eiga að geta haldið sín litlu jól eins og ég gerði með öðrum krökkum þegar ég var lítill. Þá var ekkert vandamál að menn teiknuðu og föndruðu engla. Nú er það allt í einu orðið vandamál. Þar með halda Siðmennt og Vantrú fram með sínu hvítakuklsbulli að englamyndir séu beinlínis hættulegar.

  3. Ásgeir Valur Sigurðsson 18. nóvember 2013 · á Facebook

    Gunnar og nútímann líka. Ég geri engann greinarmun á Siðmennt og X - D.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Trú og veraldlegt samfélag

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.