Hoppa í efni

Atheism – The Case Against God

Sigurður Hólm Gunnarsson | 23.04.2008

Kápa bókar George H. Smith: Atheism – The Case Against God.Eftir: George H. Smith

Umfjöllun:
Frábær bók um trúleysi. Fáum hefur tekist betur að skilgreina trúleysi en George H. Smith. Mæli eindregið með þessari skemmtilegu og upplýsandi bók. Smith fjallar ítarlega um hvað trúleysi þýðir í raun og veru. Trúleysi er ekki guðshatur, siðleysi eða trú heldur einfaldlega sú afstaða að trúa ekki á yfirnáttúruleg fyrirbrigði án sannana.

Smith bendir réttilega á að sönnunarbyrðin er á herðum hinna trúuðu en ekki trúleysingja. „Trúleysi er trú af því þú getur ekki sannað að Guð sé ekki til“ er álíka gáfulegt og að segja að „sá sem trúir ekki á jólasveinninn sé trúaður af því hann getur ekki sannað að jólasveinninn sé ekki til.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Guðjón Eyjólfsson 23. apríl 2008

    Ég lesið þessa bók og er ekki hrifinn.  Vantrúarofstæki er ekkert berta en annað ofstæki og mér finnst þess bók lykta af því.  Menn verða að gera sér grein fyrir að það er ekki hægt að komast að neinum endanlegum niðurstöðum um lífsskoðun. Skoðanafrelsi felur í sér að menn geta haft hvaða skoðun sem er og byggt hana á hvaða forsendum sem er. Það er engin sönnunarbyrði til staðar. Menn gera það sem þeir kæra sig um vegna þess að þeir eru varðir af mannréttindum og umburðalyndi.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.