Hoppa í efni

Áhugaverð kvikmyndahátíð

Sigurður Hólm Gunnarsson | 21.10.2004

Ég á til með að mæla með nokkrum pólitískum heimildarmyndum sem sýndar eru í Háskólabíói þessa dagana. Þetta eru myndirnar Outfoxed: Rupert Murdoch's War on Journalism, The Corporation, The Yes Men og Bush’s Brain. Outfoxed og The Corporation eru áhugaverðastar enda báðar mjög vandaðar myndir. Outfoxed fjallar um “sanngjörnu og hlutlausu “fréttastöðina”” Fox, sem er hvorki sanngjörn né hlutlaus, og varla fréttastöð. Í The Corporation er fjallað um áhrif stórfyrirtækja á líf okkar allra, lýðræðið og umhverfið.

The Yes Men og Bush’s Brain eru mun síðri myndir að mínu mati en þó nokkuð áhugaverðar. Í The Yes Men er sagt frá nokkrum andstæðingum alþjóðavæðingar sem ferðast um heiminn og þykjast vera fulltrúar The World Trade Organization. Á ferðalögum sínum komast þeir upp með það að halda ræður þar sem þrælahald er réttlætt út frá viðskiptasjónarmiðum, og fáir virðast kippa sér upp við þá hugmynd. Í Bush’s Brain er Karl Rove, einn helsti ráðgjafi Bush, aðalviðfangsefnið. Nokkuð ljóst er að sá maður er siðspilltur pólitíkus sem gerir hvað sem er til að koma höggi á pólitíska andstæðinga sína. Áhugaverð, en frekar illa gerð mynd.

Ég hvet alla sem hafa áhuga á pólitík og blaðamennsku til að kíkja á þessar myndir, sérstaklega Outfoxed og The Corporation.

Umfjöllun um ofangreindar myndir á Internet Movie Database:
Outfoxed
The Corporation
The Yes Men
Bush's Brain

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (839) →

Fleiri greinar sem tengjast: Menning og saga

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.