Hoppa í efni

Landlæknir varar við fjárplógsstarfsemi

Sigurður Hólm Gunnarsson | 22.09.2004

Full ástæða er til að hrósa Sigurði Guðmundssyni landlækni fyrir að koma fram í fjölmiðlum og vara sérstaklega við “orkunámsskeiði” sem hann segir “fjárplógsstarfsemi af verstu tegund”. Þar erum við sammála. Það er fátt eins svívirðilegt og þegar óprúttnir aðilar féfletta veikburða og viðkvæmt fólk. Ég hvet landlækni til að láta frekar að sér kveða í þessum málum og veita þeim sem lenda í klóm á skottulæknum aðstoð.

Erfitt getur reynst að banna starfsemi þar sem líkamlega og andlega vanheilt fólk er misnotað. Sönnunarbyrðin er erfið og fórnarlömbin eiga oft erfitt með að leita réttar síns. Margir skammast sín fyrir að hafa verið plataðir af skottulæknum og aðrir gera sér enga grein fyrir því að þeir hafi verið hafðir að féþúfu.

Landlæknir gæti þó hjálpað mikið til með því að standa fyrir fræðslu um skottulækningar og bjóða þeim sem hafa lent í klónum á skottulæknum aðstoð. Nóg virðist vera til af misyndismönnum sem vilja misnota og féfletta veikburða fólk. Nægir þar að nefna suma þá sem standa að sjónvarpsstöðinni Omega, en sú stöð virðist ganga meira eða minna út á það að hafa fé af veikum, öldruðum, öryrkjum og fáfróðum. Löglegt en siðlaust.

Sjá nánar:
Hættuleg fjárplógsstarfsemi - Fréttablaðið 18. september.
Segir starfsemina hættulega - Stöð 2 20. september.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Vésteinn Valgarðsson 25. september 2004

    Mæl þú manna heilastur, Sigurður. Ég var um daginn að forvitnast um það, hvort fyndust í internetinu góðar (=réttar) upplýsingar (=viðvaranir) um meintar smáskammta"lækningar" eða aðrar hjálækningar og mér til undrunar og vonbrigða fann ég svo gott sem engar. Ef opinber embætti trassa það að upplýs fólk um hættuna af þessum loddurum, er þá nokkur furða að þeir vaði uppi? Vitanlega getum við, sem ábyrgir borgarar, ekki keypt okkur frá ábyrgðinni. Hún er líka okkar. Það er gustuk ef óbreyttir borgarar, félagasamtök, fjölmiðlar eða aðrir aðilar koma á framfæri upplýsingum sem geta forðað fólki frá því að láta glepjast.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.