Hoppa í efni

Horft til framtíðar – langtímamarkmið ofar skammtímalausnum

Sigurður Hólm Gunnarsson | 23.06.1999

Alltof oft einkennist stefna stjórnvalda af skammtímalausnum. Um leið gleymist að setja langtímamarkmið og móta heildstæða stefnu. Ástæður þess eru án efa þær að þrýstihópar krefjast úrlausna á eiginn vanda/hugðarefnum strax en ekki á morgun og hvað þá eftir 10 ár. Stjórnvöld og stjórnmálaflokkar bregðast því oft við þessum þrýstingi með skyndilausnum sem hljóma vel í eyrum kjósenda. Þegar grannt er skoðað eru þessar ,,lausnir" í raun engar lausnir heldur í besta falli gálgafrestur en í versta falli hinu verstu óvættir þar sem þær virka sem tálsýn um að allt sé í lagi þegar í raun svo er alls ekki. Í skjóli skyndilausna vex vandinn og fáir virðast skilja af hverju.

Gott dæmi um þetta er hvernig landbúnaðarkerfið hefur þróast á undanförnum áratugum. Ríkisstyrkir til framleiðenda og innflutningshöft hafa haft það í för með sér að myndast hefur furðulegt fyrirkomulag þar sem skattgreiðendur bera byrðar í formi hærri skatta, neytendur bera byrðar í formi hærra vöruverðs og leiða má rök að því að þeir sem vinna í landbúnaði beri byrðar þar sem þeir kynnu að hafa betri kjör í öðrum störfum.

Fleiri dæmi mætti nefna svo sem hvernig málum er komið í mennta- og menningarmálum, skattamálum að ógleymdu fyrirkomulagi trúmála.

Stjórnmálamenn, rétt eins og aðrir, þurfa að leggja áherslu á að móta og vinna að langtímamarkmiðum ef þeir vilja gera raunverulegt gagn. Við mótun langtímamarkmiða þurfa ráðamenn að gera grein fyrir hvort, hvernig og hvers vegna stjórnvöld eiga að skipta sér af viðkomandi málaflokkum.

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (850) →

Fleiri greinar sem tengjast: Heimspeki og hugmyndafræði

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.