Hoppa í efni

Cosmos (bók)

Sigurður Hólm Gunnarsson | 17.08.2008

Cosmos

CosmosEftir: Carl Sagan

Umfjöllun:
Cosmos er skrifuð eftir samnefndum sjónvarpsþáttum sem Carl Sagan framleiddi og stýrði á áttunda áratugnum. Í bæði bókinni og þáttunum fjallar Sagan um upphaf lífsins á jörðinni, upphaf og endalok alheimsins, sagnfræði, pólitík, heimspeki, trú og umburðarlyndi. Hann sýnir að með réttum efnistökum er hægt að kveikja áhuga nánast hvers sem er á þekkingu og sjálfstæðri hugsun um lífið og tilveruna. Eitthvað sem skólakerfið ætti að gera, en mistekst þar sem flestum leiðist á skólabekk.

Kaflar bókarinnar (og einstakir þættir í þáttaröðinni) heita ljóðrænum og heillandi nöfnum: „The Shores of the Cosmic Ocean“, „One Voice in the Cosmic Fugue“, „The Harmony of the Worlds“, „Heaven and Hell“, „Blues for a Red Planet“, „Travelers’ Tales“, „The Backbone of Night“, „Travels in Space and Time“, „The Lives of the Stars“, „The Edge of Forever“, „The Persistence of Memory“, „Encyclopedia Galactica“, „Who Speaks for Earth?“

Eftir lestur Cosmos getur maður ekki annað en dáðst af stórfengleika alheimsins. Sagan bendir á þennan stórfengleika með mörgum mögnuðum samlíkingum. Hann bendir til dæmis á að í handfylli af sandi eru að finna um 10 þúsund sandkorn. Það er álíka mikill fjöldi og fjöldi þeirra stjarna sem við, jarðarbúar, sjáum með berum augum frá jörðu. Hins vegar er heildarfjöldi stjarna (fjarlægra sóla) í alheiminum mun meiri en fjöldi þeirra sandkorna sem finnast á ÖLLUM ströndum jarðarinnar…

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. omario 14. ágúst 2010

    svakaleg bók

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson er stofnandi og ritstjóri Skoðunar frá 1999. Hann er iðjuþjálfi, ráðgjafi og sáttamiðlari og rekur Allir sáttir. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og starfi með ungmennum og fjölskyldum. Sigurður rekur einnig Proxima og hefur áralanga reynslu af vefhönnun, vefumsýslu og upplýsingatækni, með sérþekkingu á WordPress og diplómapróf í vefmiðlun frá Háskóla Íslands. Á Skoðun skrifar hann um samfélagsmál, samskipti, hugmyndafræði og menningu.

Allar greinar höfundar (858) →

Fleiri greinar sem tengjast: Vísindi, gagnrýnin hugsun og tækni

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.