Hoppa í efni

Áhugaverð heimildarmyndahátíð

Sigurður Hólm Gunnarsson | 10.11.2003

Félagsskapurinn Gagnauga stendur fyrir afar áhugaverðri heimildarmyndahátíð þessa dagana sem allir ættu að kíkja á. Gagnauga heldur úti vefnum www.gagnauga.net og þar segir að markmið félagsins sé að "koma á framfæri og kynna róttæk og gagnrýnin sjónarmið sem hefðbundnir fjölmiðlar hafa lítið fjallað um." Í myndunum er meðal annars fjallað um utanríkisstefnu Bandaríkjanna og hún harðlega gagnrýnd enda ljóst að þarlend stjórnvöld bera ábyrgð á miklum grimmdarverkum víðs vegar um heiminn.


Á vefsíðu Gagnauga segir enn frekar:

"Sannleikurinn er sjaldan hlutlaus en getur verið mjög pólitískur og viðkvæmur. Það er a.m.k. mjög sanngjarnt að fólk fái tækifæri til þess að kynna sér aðra sýn á heiminn en hefðbundnir fjölmiðlar bjóða upp á og geti tekið sjálfstæða afstöðu út frá því."

Það er svo sannarlega hægt að taka undir þessi orð. Félagarnir í Gagnauga eiga hrós skilið fyrir að reyna vekja fólk til umhugsunar með þessum hætti. Hvet ég hér með alla sem hafa áhuga á alþjóðamálum og réttlæti í heiminum til að kíkja þessa hátíð, en henni líkur að öllu óbreyttu 26. nóvember.

Dagskrá hátíðarinnar:

Nánari upplýsingar eru að finna á vefnum www.gagnauga.net

Skrifa athugasemdLoka

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Alþjóðamál

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.